Viðeyjarsund á mettíma
Heimir sést hér fyrir miðju að loknu sundinu í gær ásamt aðstoðarafólki sínu. Lengst til hægri á myndinni má sjá Benedikt Hjartarson Ermarsundskappa. mbl.is/Jón Svavarsson
eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.isSundkappinn Heimir Örn Sveinsson lauk Viðeyjarsundi í gær á tímanum 1:08:50 klst. Alls synti Heimir 4,8 km og er því um mettíma að ræða miðað við vegalengd og þá leið sem hann synti.
Heimir synti frá Viðeyjarbryggju inn í Reykjavíkurhöfn að flotbryggjunni við hvalaskoðunarbásana. Hann segir þetta vera leiðina sem Eyjólfur sundkappi synti forðum daga og teljist vera formlegt Viðeyjarsund.
„Þetta er met miðað við vegalengd og þessa leið sem ég synti,“ segir Heimir í samtali við mbl.is.
Hann segir að bein sundlína sé 4,4 km en vegna hliðaröldu, sem hann lenti í, hafi hann á endanum synt 4,8 km. „Ég fór aðeins úr leið, ég var alltaf að leiðrétta stefnuna,“ segir Heimir. Sundið gekk hins vegar vel og Heimir náði að halda góðu skriði á meðan sundinu stóð.
„Ég er tiltölulega sáttur en mig langar til að fara þetta á undir klukkutíma við betri aðstæður, og ég tel mig geta gert það leikandi létt.“
Heimir tekur hins vegar fram að það megi deila um metið þar sem sundleiðin sé ekki formlega viðurkennd. „Vandamálið með þetta sund er að það er ekki búið að festa það almennilega niður. Ég, í samvinnu við sundsambandið og Reykjavíkurborg, vil gera þetta formlegt og festa niður leiðina, þannig að þetta sé á hreinu.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. júlí 2009, Innlent Heimir synti Viðeyjarsund á rétt um klukkutíma
- Fimmtudagur, 17. júlí 2008, Innlent „Aldrei aftur í sjóinn"
- Laugardagur, 25. júlí 2009, Innlent Fyrsta Hríseyjarsund sögunnar
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Fleiri auðir en frjálslyndir
- Laugardagur, 15. ágúst 2009, Innlent Syntu Grettissund
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































