Umdæmakóngar 1998: Breytt landslag í atvinnumálum
Ýmislegt forvitnilegt kemur í ljós þegar álagningarseðlar þeir sem lagðir voru fram í vikunni eru bornir saman við þau opinberu gjöld sem greidd voru fyrir áratug.
Skattakóngur árið 1998 var Þorvaldur Guðmundsson, oft kenndur við Síld og fisk, en hann greiddi tæpar 46 milljónir í opinber gjöld vegna tekna ársins 1997.
Byggði Hótel Holt
Þorvaldur var atkvæðamikill athafnamaður í Reykjavík og byggði meðal annars Hótel Holt ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Þá rak hann um tíma Þjóðleikhúskjallarann og stofnaði fyrirtækið Síld og fisk.Samkvæmt framreiknuðum opinberum gjöldum Þorvaldar greiddi hann um 69 milljónir í opinber gjöld vegna ársins 1997, ef miðað er við breytingar á meðaltali vísitölu neysluverðs árin 1997 til 2007, þ.e. árin sem launin, sem gjöldin nú og fyrir áratug stafa af, voru greidd.
Blikna í samanburðinum
Opinber gjöld Þorvaldar blikna í samanburði við greiðslur skattakóngsins í ár, Kristins Gunnarssonar, apótekara í Reykjavík. Hann greiddi um 451 milljón í opinber gjöld, sem er um 6,5-falt það sem Þorvaldur greiddi framreiknað samkvæmt vísitölu neysluverðs.Athyglisvert er einnig að sjá að samanlög opinber gjöld þeirra 15 einstaklinga sem mestu gjöldin greiddu samkvæmt álagningarseðlum árið 1998, er ekki nema einn tíundi þess sem 15 hæstu greiða nú. Heildargjöld þessa hóps fara úr tæpum 338 milljónum í tæpa 3,8 milljarða.
Til samanburðar hefur samanlögð álagning tekjuskatta og útsvars á sama tímabili rúmlega tvöfaldast, eða vaxið úr 100,8 milljörðum á núvirði í 213,6 milljarða.
Búa á höfuðborgarsvæðinu
Annað sem kemur í ljós þegar opinber gjöld áranna tveggja eru borin saman, er að ofurskattgreiðendur hafa þjappast á höfuðborgarsvæðið. Aðeins ein manneskja utan höfuðborgarsvæðisins, Jóhanna H. Sigurðardóttir í Dalabyggð, kemst á „topp 15“ þeirra sem greiða hæstu opinberu gjöldin vegna ársins 2007, eða um 213 milljónir.Fyrir áratug voru hins vegar sjö af þeim fimmtán sem greiddu hæstu opinberu gjöldin skráðir utan höfuðborgarsvæðisins, þar af sex á Suðurnesjum.
Safnast kringum borgina
Athyglisvert er einnig að sjá að þeir sem borga hæstu gjöldin eru nú talsvert fleiri í hverfunum í kringum Reykjavík en var fyrir áratug. Þá voru tveir í Hafnarfirði og einn á Seltjarnarnesi á „topp 15-listanum“. Nú eru þrír úr Kópavogi, þrír úr Hafnarfirði, einn úr Garðabæ og einn af Seltjarnarnesi á listanum.Ef marka má þennan samanburð hefur hlutur kvenna í hópi auðmanna vænkast. Engin kona var á meðal þeirra fimmtán sem greiddu hæstu opinberu gjöldin fyrir áratug. Nú eru þær hins vegar þrjár; þær Ingunn Gyða Wernersdóttir, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og Jóhanna H. Sigurðardóttir.






































