Forstjórastaða Keflavíkurflugvallar ohf. auglýst
Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur var stofnað 26. júní í kjölfar lagasetningar Alþingis og skal félagið frá 1. janúar næstkomandi taka yfir rekstur og starfsemi Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins og framkvæmd laganna og skipaði hann stjórn félagsins á stofnfundinum sem starfa skal fram að fyrsta aðalfundi þess. Jón Gunnarsson er formaður félagsins.
Í auglýsingu um forstjórastarfið segir meðal annars að starfs- og ábyrgðarsvið forstjóra sé fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi sem tilheyri Keflavíkurflugvelli og dótturfélögum, eftirlit með að framfylgt sé lögum, reglugerðum, alþjóðasamningum og fyrirmælum um flugstarfsemi, uppbygging og stefnumótun, áætlanagerð, skipulags-, öryggis- og umhverfismál og innlend og erlend samskipti.
Gerðar eru kröfur til háskólamenntunar á sviði viðskipta eða um sambærilega menntun sem nýtast muni í starfinu, víðtækrar stjórnunarreynslu, framkvæmdavilja og metnaðar, framúrskarandi samskiptahæfni, samningatækni, þekkingar á fjármálum og góðrar og öruggrar framkomu.
Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur við rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs flugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi svo og rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Félaginu er heimilt að standa að stofnun annarra félaga og fyrirtækja og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Þannig er félaginu heimilt að taka þátt í félagi sem ætlað væri að annast atvinnuuppbyggingu á nærsvæði flugvallarins.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. janúar 2009, Innlent Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa
- Miðvikudagur, 17. september 2008, Innlent Nýr forstjóri Keflavíkurflugvallar
- Föstudagur, 2. janúar 2009, Innlent Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa
- Fimmtudagur, 26. júní 2008, Innlent Opinbert hlutafélag um rekstur á Keflavíkurflugvelli stofnað
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Flugstöðin í samstarf við björgunarsveitina Suðurnes
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































