Þrýst á að óvinnufærir starfsmenn snúi aftur til vinnu
Verkalýðsfélag Akraness segir að stóriðjufyrirtækin Norðurál og Elkem Ísland á Grundartanga virðast leggja nokkuð hart að þeim starfsmönnum sínum sem lent hafi í vinnuslysum að mæta sem allra fyrst til vinnu aftur, þó svo að starfsmennirnir séu með læknisvottorð sem kveði á um óvinnufærni með öllu.
Fram kemur á vef félagsins að starfsmönnum fyrirtækjanna sé oft boðið að taka að sér léttari störf á verksmiðjusvæðunum og svo virðist sem tilgangur fyrirtækjanna sé að komast hjá því að skrá vinnuslys sem fjarveruslys.
„Þessi framkoma fyrirtækjanna er að mati formanns Verkalýðsfélags
Akraness með öllu óþolandi og hefur formaður gert alvarlegar
athugasemdir við þessa framkvæmd á vinnuslysum bæði hjá Norðuráli og
Elkem Íslandi.“
Á vefsíðu félagsins er tekið dæmi þegar ung kona, sem starfar hjá Norðuráli, varð fyrir lyftara fyrir nokkrum dögum. Konan var á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar og í ljós kom að meiðsli hennar reyndust minni en talið var í fyrstu. „Þegar stúlkan tilkynnti vaktstjóra sínum daginn eftir slysið að hún treysti sér ekki til að koma til vinnu bæði vegna áverka og andlegs áfalls þá brást vaktstjórinn ókvæða við og sagði að við slíkt væri ekki hægt að una vegna þess að þá yrði að skrá slysið sem fjarveruslys. Svona framkomu ætlar VLFA ekki að sætta sig við og mun ekki gera,“ segir á vef verkalýðsfélagsins.
Þá segir að álíka tilfelli hafi komið upp hjá Elkem Ísland á síðasta ári. Þá datt starfsmaður í stiga og handleggsbrotnaði. Verkalýðsfélag Akraness segir forsvarsmenn Elkem hafa óskað eftir því við starfsmanninn að hann mætti til vinnu til léttari starfa þó svo að hann væri óvinnufær með öllu líkt og fram hafi komið í læknisvottorði sem starfsmaðurinn fékk.
Tekið er fram að þetta séu ekki einu tilfellin þar sem óskað sé eftir að starfsmenn þessara fyrirtækja mæti strax til vinnu eftir vinnuslys.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Innlent Vísa ásökunum VLFA á bug
- Mánudagur, 22. september 2008, Innlent Væntingar til samnings
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Árangurslítill fundur hjá ríkissáttasemjara
- Miðvikudagur, 3. desember 2008, Innlent Laun starfsmanna hjá Elkem hækka um 17-22%
- Þriðjudagur, 6. janúar 2009, Innlent Gengur hægt að semja á Grundartanga
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































