Veislan í Rangánum heldur áfram
Handtökin við skráningarborðið við Eystri-Rangá eru mörg í vaktarlok. Stundum eru mældir og plastaðir á þriðja hundrað laxa á dag. mbl.is/Einar Falur
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is
„Hvar er best að láta reykja lax?“ spurði erlendur veiðimaður mig árla morguns við veiðihúsið við Eystri-Rangá nýlega. Þegar sendibíllinn renndi skömmu síðar að og byrjað var að bera vikuafla feðganna í bílinn, hvern úttroðna svarta pokann á fætur öðrum, skildi ég spurninguna; þeir veiddu á þriðja hundrað laxa í sinni árlegu ferð í þá eystri og láta reykja allan aflann og senda á eftir sér heim.
Eins og áhugamenn um veiði hafa fylgst með, þá er þetta enn eitt ævintýralega veiðisumarið í Rangánum – og gæti orðið best þeirra allra. Í fyrra var sett aflamet í þeirri eystri og veiðast aldrei færri en 100 laxar á dag, stundum vel á þriðja hundraðið. Með tilkomu laxveiðiánna sem byggjast á sleppingu seiða sem ganga til hafs, hefur stangadögum á markaði á Íslandi fjölgað mikið og nýjar veiðilendur opnast. Veitt er með 18 stöngum í Eystri-Rangá og þótt þetta væri skiptidagur og margir veiddu lítið um morguninn var aflinn þó hressilegur.
Sú eystri yfir 3.000 laxa
„Þetta voru ekki „nema“ 140 laxar í dag. Sjötíu á hvorri vakt,“ sagði Einar Lúðvíksson, umsjónarmaður ánna, glottandi eftir að hafa mælt og vegið síðasta lax dagsins. Þær eru oft langar tarnirnar við borðið þar sem allir fiskar eru mældir og vegnir og færðir til bókar samkvæmt reglum.Einar mælir fiskana sjálfur og fylgist með hvort veiðiuggann vantar, því þá hafa þeir örmerki í trjónunni. Hann fann átta slíka þennan dag.
Veiðimennirnir sem blaðamaður hitti þennan dag voru ánægðir og sumir afar kátir. Þarna er nefnilega veisla. Félagar sem veiddu á tvær stangir, á spún og flugu, fengu hátt í 30 laxa. Mikið af fiski er í ánni, en eins og annars staður tekur hann stundum ekki eða illa, og stundum mun betur. Blaðamaður lenti í því neðst í ánni, þar sem laxinn kom varlega í fluguna, en veiddi hinsvegar tvo fallega sjóbirtinga. Báðir voru þó illa bitnir af skaðvaldinum sæsteinssugu sem hefur gert sig heimakomna við suðurströndina síðustu ár. Á seinni vakt dagsins á efsta svæði, þar sem áin rennur í ólíkum og heillandi strengjum og breiðum, var takan líflegri, enda hafði áin þá hlýnað eftir sólríkan dag. „Það er gaman að veiða í á þar sem er nóg af fiski,“ sagði brosmildur fyrrverandi leiðsögumaður við ána. Hann lýsti hvernig fiskurinn tæki við Rangárhólma. „Steinsökk og þýsk Snælda.“ Það gekk eftir. Í fyrsta kasti. Og Einar Lúðvíksson fékk enn einn laxinn að skrá. Sá var númer 3.020 þetta sumarið.





































