300 laxar á land í Hvítá

Tæplega 300 laxar hafa komið á land við Langholt í Hvítá. 32 laxar komu á einu degi í síðustu viku á aðeins tvær stangir. Að sögn veiðimanns voru allir þessir 32 laxar jafn stórir smálaxar sem veiðimaðurinn gerði ráð fyrir að hefðu verið á leið í Tungufljótið.

Gríðargóð veiði hefur verið í Tungufljóti í Biskupstungum í ár. Nær 800 laxar hafa veiðst á 4 stangir það sem af er sumri. Meðalveiði á stöng síðustu vikur hefur oft farið yfir 10 laxa á dag. Mikið ræktunarátak hefur verið í gangi í fljótinu síðustu ár og það skilar sér nú í þessari miklu veiði.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert