Tillaga Arkþings hlutskörpust í Kópavogi

Tillaga Arkþings
Tillaga Arkþings

Tillaga arkitektastofunnar Arkþings ehf. og samstarfsaðila hennar, Arkitema í Danmörku varð hlutskörpust í samkeppni um hönnun óperuhúss í Kópavogi. 

Dómnefnd samkeppninnar leggur til að leitað verði samstarfs við hönnuði Arkþings ehf. um þróun og úrvinnslu verkefnisins.

Undirbúningsnefnd um byggingu óperuhúss í Kópavogi kynnti niðurstöðu dómnefndarinnar í Salnum í dag. Dómnefndin hafði haft það verk með höndum að gera upp á milli tillagna annars vegar Arkþings ehf. og hins vegar ALARKS ehf. Arkitektastofurnar tvær tóku þátt í framhalds samráðskeppni um hönnun óperuhússins í samræmi við tillögu dómnefndarinnar frá 31. mars sl. en hún taldi að fyrirliggjandi tillögur fullnægðu ekki markmiðum samkeppninnar.
 
„Er það einróma álit dómnefndarinnar að höfundar hafi lagt sig fram um að vinna úr ábendingum dómnefndar og að báðar tillögurnar séu vel unnar og höfundum þeirra til sóma,“ segir m.a. í áliti dómnefndarinnar. „Eftir nákvæma skoðun og samanburð tillagna leggur dómnefnd til við undirbúningsnefnd um byggingu óperuhúss að endurunnin tillaga Arkþings ehf. verði valin til nánari útfærslu.“
 
„Þetta er eitt skref áfram af mörgum en þó mikilvægt skref,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi og formaður dómnefndarinnar, í tilkynningu. „Menningarþjóð verður að koma þaki yfir þessa listgrein svo að sómi sé að og næst á dagskrá er að koma óperuhúsinu í skipulagsferli.“
 
Markmiðið með óperuhúsinu er að það verði heimili fyrir óperuna á Íslandi og að þar verði fyrsta flokks aðstaða til óperu- og söngleikjaflutnings auk hliðstæðrar starfsemi, s.s. tónleika og annarrar sviðslistar eða uppákoma, að því er segir í tilkynningu.
 
Í dómnefnd sátu auk Gunnars I. Birgissonar, Stefán Baldursson óperustjóri og arkitektarnir Ásdís Ingþórsdóttir, Ólafur Axelsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson.

Undirbúningsnefnd skipa Gunnar I. Birgisson, Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar, Hafsteinn Karlsson bæjarfulltrúi, Stefán Baldursson óperustjóri og Jón Helgi Guðmundsson forstjóri.
 

Frá kynningu á úrslitum í samkeppni um byggingu óperuhúss í …
Frá kynningu á úrslitum í samkeppni um byggingu óperuhúss í Kópavogi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert