Hjón með 3 börn fengu stóra vinninginn

Hjón með þrjú börn reyndust hafa unnið sjöfaldan lottóvinning um síðustu helgi, tæpar 66 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá eru hjónin frá Taílandi. Þau búa í Fellahverfi í Breiðholti.

Konan, sem keypti miðan, er íslenskur ríkisborgari sem hefur búið hér í 10 ár og eiginmaður hennar hefur búið hér í 5 ár.

Íslensk getspá segir, að hjónin hafi bæði stundað meira en eina vinnu til að ná endum saman.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert