Þriðjungur styður Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir mbl.is/Frikki

Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi borgarstjóri, nýtur stuðnings 32,3% kjósenda í embætti borgarstjóra, samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið birtir í dag. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, hefur stuðning flestra borgarbúa í embætti borgarstjóra samkvæmt könnuninni eða 43,8%.

Hringt var í 600 borgarbúa laugardaginn 16. ágúst og spurt var: Hver vilt þú að sé borgarstjóri Reykjavíkur? 67,7% tóku afstöðu til spurningarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert