Veiðin aðeins brot af því sem verið hefur

mbl.is/Sigurgeir

 Við lok lundaveiðitímabilsins í Vestmannaeyjum kom í ljós það sem menn óttuðust, að viðkomubrestur í stofninum undanfarin þrjú ár er farinn að koma fram í miklu minni veiði.

Samkvæmt tölum sem Morgunblaðið hefur aflað er veiðin ekki nema brot af því sem gerist í venjulegu árferði. Í byrjun tímabils virtist sem varp ætlaði að heppnast en nú eru að koma fram mikil afföll í pysju þannig að árið gæti orðið það fjórða í röð þar sem aðeins lítill hluti lundapysjunnar kemst upp. Veiði var takmörkuð á síðasta ári og enn frekar í sumar en nú telja kunnugir að jafnvel verði gripið til algjörs veiðibanns næsta sumar.

Sést varla fugl

Pétur Steingrímsson, sem hefur áralanga reynslu í lundaveiði, var staddur í Bjarnarey þegar Morgunblaðið ræddi við hann. Hann sagðist varla sjá fugl en hann hafði þó frétt af talsverðu flugi tveim dögum áður. „En núna er þetta eins og seint að hausti, aðeins örfáa lunda að sjá,“ sagði Pétur. „Ekki urðum við varir við mikinn lunda á sjónum en sáum þó einn og einn á leiðinni. Ekki var hann með æti í goggnum og þegar við komum að eynni sáum við varla fugl á flugi.“

Pétur og fleiri sem rætt var við sögðu að ástandið væri „hræðilegt“ og engu hefði skipt þótt veður hefði verið hagstætt til veiða, lundinn gaf sig einfaldlega ekki. Í Bjarnarey máttu lundakarlar „þakka fyrir að fá í soðið“, yfirleitt hefur veiðin þar verið á milli 90 og 100 kippur en 100 fuglar eru í hverri kippu. Mesta veiði sem vitað er um í Bjarnarey á síðari árum er 140 kippur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert