„Gífurleg tortryggni gagnvart Rússum"
„Rússar eru sýnilega ekkert á förum. Þeir áttu að fara í dag [gær, mánudag] samkvæmt friðar- og vopnahléssamningum sem þeir höfðu undirritað. Þeir eru hins vegar um 14 km utan við Tblisi og sitja sem fastast,“ segir Ólöf Magnúsdóttir sem komin er til Tblisi, höfuðborgar Georgíu, sem íslenskur friðargæsluliði á vegum utanríkisráðuneytisins.
Ráðuneytið hefur jafnframt lagt 3 milljónir til Rauða krossins vegna neyðarástands í landinu sem skapaðist í kjölfar átakanna sem brutust út nýlega. Gert er ráð fyrir að Ólöf verði við störf í Georgíu í einn mánuð.
Hún segir að fjölmiðlafólki hafi verið meinaður aðgangur að helstu átakasvæðunum en ekki sé mikið um ofbeldi.
„Það er hinsvegar gífurleg spenna og tortryggni gagnvart Rússum hérna í Georgíu,“ segir hún.
Hætta vegna jarðsprengna
„Allt sunnan og austan við Tblisi er opið en norðan og vestan við borgina er hætta vegna jarðsprengna og þar hafa Rússar sett upp vegatálma við helstu vegi. Það er því erfitt að komast að þeim svæðum sem virkilega þurfa hjálp og það er helsta áskorunin sem hjálparsamtök standa frammi fyrir, þ.e. hvernig í ósköpunum á að koma hjálpargögnum til fólks án þess að Rússar komi í veg fyrir það.“Ólöf segist ekki hafa orðið vör við sært fólk eða neyð innan sjálfrar Tblisi en allt aðra sögu er að segja um svæðið í Suður-Ossetíu, norðan við borgina.
„Fólk fær ekki mat og vatn, búið er að loka öllum búðum og heilsugæsla er ekki í boði. Þungaðar konur hafa miklar áhyggjur og hafast við í skólum. Hreinlæti og vatn er ekki til staðar og ástandið er því virkilega slæmt, þótt ég hafi ekki séð það með eigin augum.“
Ólöf er kynningarfulltrúi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna UNICEF á Íslandi og mun starfa á skrifstofu Barnahjálparinnar í Tblisi, vinna úr upplýsingum sem berast frá staðarráðnum starfsmönnum og miðla til höfuðstöðva UNICEF og framlagsþjóða.
Í samstarfi við Barnahjálp SÞ hefur verið unnið að skipulagningu viðbragðslista fjölmiðlafólks sem hægt er að kalla til með skömmum fyrirvara í styttri verkefni þegar neyðarástand skapast eða þegar sérstakur skortur er á starfsfólki á sviði upplýsingamála.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. ágúst 2008, Innlent Íslenskur friðargæsluliði til Georgíu
- Þriðjudagur, 27. nóvember 2007, Innlent Ekkert eftirlit með kafbátum
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Sunnudagur, 29. mars 2009, Innlent Strembin sambúð NATO við Rússa
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Nýir stúdentshúfusalar seldu nóg
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































