Rekstrargrundvöllur brostinn

mbl.is/Árni Torfason

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda lýsir yfir miklum áhyggjum ef hækkun á afurðaverð til bænda í haust verður aðeins 15% eins og verðlisti Norðlenska gefur til kynna.  Slíkt þýðir að rekstrargrundvöllur fjölda sauðfjárbænda er brostinn. Þetta kemur fram í ályktun frá sambandinu.

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda fundaði í gær og samþykkti eftirfarandi ályktun.  Samþykktin var gerð í ljósi þess að nú eru horfur á að afurðaverð til sauðfjárbænda hækki mun minna en dugir til að mæta kostnaðarhækkunum sem orðið hafa á árinu. Það mun hafa alvarlega afleiðingar í för með sér fyrir marga bændur, að því er segir í tilkynningu.

„Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda lýsir yfir miklum áhyggjum ef hækkun á afurðaverð til bænda í haust verður aðeins 15% eins og verðlisti Norðlenska gefur til kynna.  Slíkt þýðir að rekstrargrundvöllur fjölda sauðfjárbænda er brostinn.

Aðalfundur LS samþykkti í apríl síðastliðnum að afurðaverð þyrfti að hækka að lágmarki um 98 krónur á kíló (27%) fyrir komandi sláturtíð.  Stjórn samtakanna gaf síðan út viðmiðunarverð í samræmi við það þann 29. apríl.  Samþykkt aðalfundarins var mjög hófleg miðað við þær miklu hækkanir sem dunið hafa á bændum síðustu mánuði á öllum aðföngum. Í henni gerðu bændur aðeins þá kröfu að afurðaverðið þyrfti að hækka til að mæta hækkunum á áburði, fjármagnskostnaði og olíu.  Aðrar hækkanir voru ekki teknar með.  Viðmiðunarverðið hefur heldur ekki verið hækkað aftur þrátt fyrir að fjármagnskostnaður og olía hafi haldið áfram að hækka frá því að það var gefið út og aftur sé spáð verulegri áburðarhækkun vorið 2009.

Í verðskrá Norðlenska sem er sú eina sem enn hefur verið gefin, út er hækkun meðalverðs 54 krónur á kíló frá landsmeðaltali 2007 sem var 363 krónur.  Sú hækkun dugir ekki einu sinnu til að mæta áburðarverðshækkuninni á þessu ári sem þýddi 64 króna aukinn kostnað á kíló.  Verði þetta niðurstaðan þýðir það einfaldlega að fjöldi sauðfjárbænda mun ekki geta haldið áfram rekstri, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir sláturleyfishafa.

Stjórn LS hvetur Norðlenska og aðra sláturleyfishafa sem eiga eftir að gefa út verðskrár til þess að hafa ofangreind sjónarmið í huga áður en endanlegar verðskrár verða gefnar út.  Sauðfjárræktin þolir ekki minni hækkun heldur en þá sem viðmiðunarverð samtakanna gerir ráð fyrir, að því er segir í ályktun frá LS.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert