Svifryk yfir heilsuverndarmörkum á sunnudag

Loft í Reykjavík í dag eru hreint en svifryk fór yfir heilsuverndarmörk á sunnudaginn vegna mengunar frá meginlandi Evrópu. Mengun sem berst á milli landa er algeng í Evrópu, samkvæmt fréttatilkynningu frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar.

Mengað meginlandsloft hefur gengið yfir sunnanvert Ísland undanfarna daga. Sunnudaginn 17. ágúst skreið styrkur svifryks rétt yfir sólarhrings heilsuverndarmörk í Reykjavík og mældist 52,3 míkrógrömm á rúmmetra við Grensásveginn en viðmiðunarmörkin eru fimmtíu. Mánudaginn 18. ágúst var styrkurinn vel undir mörkum eða 30,2 míkrógrömm á rúmmetra og í dag þriðjudag eru loftgæðin orðin mjög góð.

„Þetta sýnir okkur að uppspretta loftmengunar er af ýmsum toga og þótt við búum lengst norður í Atlantshafi þá verður hér vart mengunar frá meginlandinu, eins og við höfum orðið var við á undanförnum árum,“ segir Anna Rósa Böðvarsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, í tilkynningu.  

„Mengun milli landa er mjög vel þekkt á meginlandi Evrópu, til dæmis berst reglulega svifryk frá sandstormum Sahara yfir viss lönd. Út frá þessu erum við lánsöm að búa langt frá öðrum löndum,“ segir Anna Rósa og minnir á að loftmengun er bæði staðbundið og hnattrænt vandamál. Nefna má sem dæmi um mengun af völdum iðnaðar að töluverð mengun berst frá Rússlandi til Noregs, segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert