Útreikningar kúabænda standast

stækka

Mbl.is/Eyþór Árnason

Landssamband kúabænda segir það athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum olíufélaganna vegna útreikninga sem sýni auknar álögur félaganna á litaða dísilolíu.

 Á vef Landssambands kúabænda segir að í hádegisfréttum RUV í gær viðurkenni Már Erlingsson, fjármálastjóri Skeljungs að álagningin hefði hækkað þar á bæ að undanförnu.

Viðbrögð Elíasar Bjarna Guðmundssonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs N1, í 24stundum í dag séu hins vegar öllu lakari.

Hann segir útreikningana fráleita og uppfulla af staðreyndavillum. Að auki sé „bara verið að skoða heimsmarkaðsverð á olíu og gengi krónunnar“.

Þessi ummæli gefi talsvert tilefni til að ætla að Elías hafi ekki einu sinni haft fyrir því að kynna sér málið. Þau séu því í besta falli fljótfærnisleg tilraun til að slá ryki í augu lesenda. 

Útreikningar Landssambandsins byggja á gögnum frá Hagstofu Íslands um innkaupsverð á dísilolíu, vörugjald til hafnar og útsöluverð á litaðri dieselolíu. Allt í íslenskum krónum.

Álagning olíufélaganna, til að mæta rekstrarkostnaði og skapa hluthöfum þeirra arð, er útsöluverð  að frádregnu vörugjaldi og innkaupsverði. 

Þá segir að það sé engum blöðum um það að fletta að þessi álagning hafi hækkað um nærri fjórðung að undanförnu og fyrir þeirri hækkun sé harla lítil innistæða.

Landssambandið segir að engar fullyrðingar hafi verið settar fram um hagnað þessara félaga, enda er það önnur deild.

Í útreikningunum séu engar „staðreyndavillur“ enda byggi gögn Hagstofunnar á innflutningsskýrslum olíufélaganna sjálfra.

Þegar forsvarsmenn félaganna viðurkenni loks að álagningin hafi hækkað, sé þeim tíðrætt um aukinn fjármagnskostnað, vegna dýrara birgðahalds.

Fyrst að menn vilji ræða einstaka kostnaðarliði, þá sé ágætt að taka dæmi.

Forsendur þess eru þær að olía sé að jafnaði geymd í einn mánuð áður en hún er seld og að fjármagnskostnaður taki mið af stýrivöxtum Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Skjal með útreikningum er að finna hér.

Tímabil: Júlí 2007.

Innkaupsverð (CIF) auk vörugjalds, pr. 1.000 ltr: 33.696

Stýrivextir SÍ: kr 13,3%

Fjármagnskostnaður vegna birgðahalds, kr/ltr:  0,35 kr

og:

Tímabil: Júní 2008

Innkaupsverð (CIF) auk vörugjalds: 79.620 kr

Stýrivextir: 15,5%

Fjármagnskostnaður : 0,96 kr

Mismunur: 0,61 kr 

Af þessu megi dæma að kostnaður við birgðahald sé sáralítill og hafi aukist um ca. 60 aura/ltr.

Að ætla sér að skýra aukningu álagningar upp á milli fimm og sex kr á lítra með honum sé með öllu fráleitt.

Vefur Landssambands kúabænda

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir vaxandi stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka og að skoða ætti möguleikann á gagnkvæmu bandalagi.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vatnskassaviftur - tilboð
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
Gallerí Voff -Hundaskóli sem skilar árangri í 20 ár
Gallerí Voff er eini hundaskólinn á landinu sem er viðurkenndur af umhverfisstof...
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
Touareg árg.2005
VW v:2,29 mkr, glæsilegur bíll v8 bein innspýtingu sjálfsk. e105 þkm. ný dekk, S...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...