Hanna Birna kjörin borgarstjóri
Hanna Birna Kristjánsdóttir, var kjörin borgarstjóri á fundi borgarráðs sem nú stendur yfir. Fékk Hanna Birna átta atkvæði nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Fulltrúar minnihlutans sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Er hún fjórði borgarstjórinn í Reykjavík á yfirstandandi kjörtímabili sem hófst sumarið 2006.
Hanna Birna þakkaði stuðninginn eftir kjörið og segir að borgarfulltrúar verði að hægja á sér í persónulegum ávirðingum. Það viti þau öll og það eigi að hlífa borgarbúum við því eins og hægt er. Það eigi að láta stærri hagsmuni ganga fyrir smærri hagsmunum augnabliksins. Það hafi verið gert með myndun þess meirihluta sem nú tekur við í borginni. Að öðrum kosti hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki slitið síðasta meirihluta. Sagði hún að kjörtímabilið hafi reynst öllum erfitt og það væri rétt hjá Óskari Bergssyni að það væri ábyrgð allra borgarfulltrúa.
Þakkaði hún Ólafi F. fyrir samstarfið en það hafi oft verið erfitt og þá ekki síst undir það síðasta. Traustið brast og trúnaður hvarf og um leið sú kjölfesta sem verður að vera í borginni, sagði Hanna Birna.
Hanna Birna segir að erfiðar aðstæður hafi gert það að verkum að ekki var annað hægt en að mynda eina raunhæfa meirihlutann í Reykjavík. Segir Hanna Birna að hún fái þau skilaboð að borgarmálin snúist meira um borgarfulltrúana heldur en borgarbúa. Því verði að breyta.
Óskaði Hanna Birna eftir stórauknu samstarfi minni- og meirihluta í borgarstjórn og boðaði breytt stjórnskipulag.
Bitruvirkjun á koppinn á ný
Segir hún að borgarstarfsmönnum verði ekki sagt upp og ekki verði dregið úr á velferðarsviðinu. Ýtt verði undir gróskumikið atvinnulíf til að mynda með því að útvega þá orku sem þarf. Rannsóknir vegna Bitruvirkunar verði settar í gang á ný og nýtt félag stofnað um útrás Orkuveitu Reykjavíkur.
Áður en kjör borgarstjóra fór fram gagnrýndu þau Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, Samfylkingu, og Svandís Svavarsdóttir, Vinstri grænum, nýjan meirihluta og sagði Ólafur hann meðal annars grundvallaðan á óheilindum og lygum.
Dagur sagði að mörgum borgarbúum líði þannig, að atkvæðin þeirra hafi verið hirt upp úr kjörkössunum og misnotuð í pólitískum hráskinnaleik.
Svandís sagði að nýr meirihluti í borgarstjórn snérist í raun um stóriðjustefnuna sem almenningur í landinu hefði hafnað. Sagði hún hann vera meirihluta ritstjóra Fréttablaðsins, Þorsteins Pálssonar, stóriðjumeirihluti.
Bloggað um fréttina
-
Óðinn Þórisson Hanna Birna Kristjánsdóttir kjörin borgarstjóri -
Stefán Friðrik Stefánsson Til hamingju Hanna Birna -
Guðmundur Löve Viðhorf liðinna tíma -
Sævar Helgason Borgarstjórn Helguvíkur og Bitru tekur völdin -
Ingólfur Borgarstjóri í einn dag -
Frikkinn Harðsnúna Hanna fær "Óskar" II -
Gísli Foster Hjartarson Nú er stóra spurningin.... -
Haraldur Haraldsson Hanna Birna kjörin borgarstjóri/Til hamingju með það!!!! -
Sigrún Jónsdóttir Reykjavík, sandkassi pólitíkusa!
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. ágúst 2008, Innlent Hanna Birna borgarstjóri
- Þriðjudagur, 16. október 2007, Innlent Margrét Sverrisdóttir nýr forseti borgarstjórnar
- Miðvikudagur, 10. september 2008, Innlent Fjármálin í forgang
- Fimmtudagur, 14. ágúst 2008, Innlent Nýr meirihluti að fæðast
- Laugardagur, 7. júní 2008, Innlent Hanna Birna verður borgarstjóri
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































