Aðdáandi númer 1 missir ekki af neinu
Það var þéttsetið í setustofu öldrunardeildar sjúkrahússins á Ísafirði þegar leikur Íslands og Spánar í undanúrslitum Ólympíuleikana var að hefjast í dag. Heldri borgarar Ísafjarðar styðja strákana í Peking ekki síður en aðrir en þar var þó fremst í flokki hin tæplega aldargamla Herdís Albertsdóttir, en ákafari stuðningsmann íslenska landsliðsins í handbolta er varla hægt að finna.
Hún situr sem límd við skjáinn og lætur það ekki á sig fá að sjónin og heyrnin eru ekki eins og þau voru. Aðspurð segist hún hafa mikinn áhuga á handbolta.
„Það byrjaði nú
svoleiðis að fyrir mörgum árum voru þrír leikmenn liðsins ættaðir úr
Djúpinu, þannig að ég sagðist alltaf eiga þrjá. Ég sagði þetta einu
sinni við Þorbjörn Jensson, þáverandi landsliðsþjálfara, sem sagðist
ekki vita til þess. Jú, sagði ég, þarna eru til dæmis Kristján
Lárusson, ættaðan úr Ögri, og Guðmund Guðmundsson sem einnig var úr
Djúpinu“, segir Herdís.
Herdís hefur fulla trú á sínum mönnum.
„Ég vona að þeir taki Spánverjana. Fyrst þeir sigruðu Þjóðverjana eru
þeir til alls líklegir, þeir geta þetta alveg. Ég veit ekki hvort liðið
núna eða liðið frá 1992 sé betra, þessir eru auðvitað svo ungir. Þarna
eru samt tveir sem maður kannast vel við, þeir Ólafur (Stefánsson) og
Fúsi (Sigfús Sigurðsson)“, segi Herdís og hlær, „Hann Fúsi... hann er
alveg ótrúlegur“.
Herdís lét sig ekki vanta á landsleik Íslands og Japans sem fór fram í Íþróttahúsinu á Torfnesi um miðjan síðasta áratug. Þar hitti hún nokkra af leikmönnum Íslands.
„Þetta voru almennilegustu piltar. Það var nú sagt um landsliðið í handbolta árið 1986 að þetta væru prúðustu menn sem væru að spila handbolta, Íslendingar. Það las ég í blaði sem ég fékk frá Þýskalandi“, segir Herdís.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Færði Herdísi treyju Kristjáns
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent „Strákarnir okkar“ í sérstöku uppáhaldi hjá Herdísi
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Laugardagur, 29. ágúst 2009, Innlent Er Fúsi elstur hunda á Íslandi?
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































