Geir í heimsókn til Albaníu og Grikklands

Geir H. Haarde.
Geir H. Haarde. mbl.is/Kristinn

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fór í dag í opinbera heimsókn til Albaníu en þar mun hann eiga fundi með Bamir Topi, forseta, Sali Berisha, forsætisráðherra, og Jozefina Topalli, forseta þingsins, auk þess sem hann heimsækir skrifstofu Actavis í Tirana.

Heimsóknin fylgir í kjölfar komu forsætisráðherra Albaníu til Íslands í fyrra og er m.a. ætluð til að styðja íslensk fyrirtæki sem hafa eða hyggja á starfsemi í landinu.

Geir fer síðan í opinbera heimsókn til Grikklands dagana 27. – 29. ágúst nk., þar sem hann mun m.a. funda með Kostas Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, og ávarpa ráðstefnu um reynslu Íslendinga af nýtingu jarðhita.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert