„Stóðu sig virkilega vel í heildina“

Geir og fjölskylda fylgjast íhugul með Frakkaleiknum í gær.
Geir og fjölskylda fylgjast íhugul með Frakkaleiknum í gær. mbl.is/Golli

Frammistaða liðsins á Ólympíuleikunum var alveg frábær, en mér fannst samt síðasti leikurinn bera keim af því að strákarnir hefðu ekki trú á því að þeir gætu sigrað Frakkana. En í heildina stóðu strákarnir sig virkilega vel,“ segir Geir Hallsteinsson handboltakempa og faðir Loga Geirssonar landsliðsmanns að loknum ÓL.

„Byrjunin var mjög slæm hjá okkur á móti Frökkum og kannski hefði mátt athuga þann möguleika að breyta byrjunarliðinu. Þótt byrjunarliðið hafi vissulega staðið sig vel, þá er dálítið skrítið að stilla upp sama byrjunarliðinu í hverjum leiknum á fætur öðrum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert