ASÍ lýsir yfir áhyggjum

Alþýðusamband Ísland hefur þungar áhyggjur af stöðu efnahagsmála, að því er segir í ályktun miðstjórnarinnar í kjölfar verðbólgumælingar Hagstofunnar. Verðbólga hefur ekki verið hærri í tæpa tvo áratugi, en hún mælist nú 14,5%

Þá segir ASÍ mikil vonbrigði að opinberir aðilar skuli hækka gjaldskrár sínar og kynda þannig enn undir verðbólguna. Gerð er krafa um að ríki og sveitarfélög haldi núna aftur af gjaldskrárhækkunum sínum. Nú sé nauðsynlegt að allir axli ábyrgð á verbólguvandanum.

Í ályktuninni kemur einnig fram að forsendur kjarasamninga séu brostnar enda hafi þar verið gert ráð fyrir að böndum yrði komið á verðbólguna og kaupmáttur yrði varinn. Kaupmáttur dragist hinsvegar hratt saman og fjölskyldur standi frammi fyrir miklum vanda.

Miðstjórn ASÍ kallar enn eftir samstarfi ríkisstjórnar, verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda, en segir undirtektir ríkisstjórnar hafa valdið vonbrigðum. „Við höfum ítrekað kallað eftir samráði í vor og í sumar, sem byggist þá á því að menn setjist saman yfir viðfangsefnið og leiti lausna. Okkar reynsla er sú að það hafi oft skilað góðum og raunhæfum tillögum sem gengið hafa eftir,“ segir Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ.

Vefur ASÍ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert