Brúin í Mjóafirði tengd saman

Ný brú í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi var tengd saman í gær er bogarnir voru settir á og brúargólfið soðið saman.

 „Brúin náði saman í gær, það er sem sagt búið að tengja saman í land og eyju. Menn hoppuðu af gleði þegar þeim áfanga var náð en það er mikill munur að vera búnir að tengja brúna saman því þá er sú hætta liðin hjá að smíðin hrynji í sjóinn. Nú getum við verið rólegir þótt það komi smá vindur“, segir Sævar Óli Hjörvarsson, hjá KNH sem ásamt Vestfirskum verktökum sér um framkvæmdina.

Að sögn Sævars verður næst farið í að steypa brúardekk og setja niður handrið og annað slíkt. Áætlað er að ný brú yfir Mjóafjörð verði opnuð í október. „Þetta hefur gengið mjög vel og við vonumst til að verða búnir í haust, en það fer allt eftir því hvort við fáum gott veður“, segir Sævar.

Um er að ræða um 130 langa stálbrú en einnig er verið að vinna að vegagerð og smíð tveggja annarra brúa í Djúpinu; 60 metra brú í Reykjarfirði og 10 metra brú við Vatnsfjarðarós. Þegar framkvæmdum lýkur verður Djúpvegur lagður bundnu slitlagi allt milli Hólmavíkur og Bolungarvíkur. Leiðin er álíka löng og núverandi leið yfir Eyrarfjall. Sú leið hefur oft verið lokuð um fjóra mánuði á ári vegna snjóþyngsla og þungatakmarkana. Þá hafa vegfarendur þurft að taka á sig 35 km krók út fyrir Vatnsfjarðarnes eftir mjóum og seinförnum vegi. Reykjanesleiðin liggur hins vegar meira og minna með ströndum fram og er því snjóléttari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert