Ekki liggur fyrir hverjum verður sagt upp

Ístak tók m.a. við framkvæmdum við breikkun Reykjanesbrautar fyrr á …
Ístak tók m.a. við framkvæmdum við breikkun Reykjanesbrautar fyrr á þessu ári. mbl.is/RAX

Verktakafélagið Ístak hefur sent Vinnumálastofnun tilkynningu um að til standi að segja upp um 300 starfsmönnum vegna samdráttar í verkefnum. Loftur Árnason, forstjóri Ístaks, segir að ekkert liggi enn fyrir um hverjum verði sagt upp.

Hann sagði, að ef til þess kæmi að erlendum starfsmönnum yrði sagt upp myndi félagið standa við skuldbindingar sínar gagnvart þeim og greiða fyrir ferð þeirra til síns heima.

Tilkynna þarf hópuppsagnir til Vinnumálstofnunar með góðum fyrirvara. „Við ákváðum því að gera það núna,“ segir Loftur.

Uppsagnirnar taka gildi 31. október n.k en uppsagnarbréfin hafa ekki verið send út. Flestir starfsmenn fyrirtækisins eru á mánaðaruppsagnarfresti en sumir eru með skemmri frest. Búist er við að starfsmenn fái uppsagnarbréfin í hendurnar fyrir 1. október.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert