Fólk hvatt til að gera óveðursráðstafanir

Búist er við fyrstu haustlægðinni um helgina.
Búist er við fyrstu haustlægðinni um helgina.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna storms sem gengur yfir landið vestanvert í nótt og fyrramálið. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíku veðri.

Búist er við ört vaxandi austanátt með rigningu í kvöld, fyrst sunnantil. Austan og norðaustan 15-25 og rigning í nótt, hvassast vestantil.

Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, að björgunarsveitir félagsins séu eru ætíð tilbúnar til að aðstoða fólk sem lendir í vandræðum vegna óveðurs. Hafi þær yfir að ráða sérstökum „óveðursbúnaði" sem nýtist í slíkum aðstæðum. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp.

Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra. 

Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.

Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112.

Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.

Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.

Dveljið innandyra meðan veðrið geysar og fylgist með verðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum.

Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að þessi haustlægð fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert