Fá ekki að vinna sem sjúkraliðar

„Þau vilja hafa okkur áfram í vinnu, en á okkar lágu launum,“ segir Ragnhildur Árnadóttir sjúkraliði. Hún lauk ásamt þremur samstarfskonum sínum á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð sjúkraliðanámi í maí, en þær fá ekki vinnu sem sjúkraliðar. „Við vorum hvattar af okkar stjórnendum til þess að fara í námið en núna vilja þeir ekki kannast við að hafa gert það,“ segir Ragnhildur.

Ragnhildur segir að sér finnist miður að Reykjavíkurborg skuli ekki hafa meiri metnað í þjónustu fyrir aldraða. „Það er verið að hvetja fólk til náms en síðan þegar það kemur úr námi þá hefur Reykjavíkurborg ekki not fyrir það,“ segir Ragnhildur og bætir við: „Þetta sýnir að þjónustustigið á ekki að vera hærra.“
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert