FÍ hefur sagt fimmtán flugmönnum upp
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is
Flugfélag Íslands (FÍ) hefur sagt upp fimmtán flugmönnum og þar af var fjórum sagt upp um nýliðin mánaðamót. Hjá félaginu starfa í vetur rúmlega sextíu flugmenn sem er heldur færra en var í fyrravetur.
„Þetta er árstíðabundin sveifla í rekstri, en hún er ef til vill heldur meiri en í fyrra,“ sagði Einar Björnsson, flugrekstrarstjóri FÍ, um uppsagnirnar. Hann sagði að samkvæmt kjarasamningi flugmanna mætti aðeins ráða flugmann sem sumarmann í eitt skipti. Næsta ár á eftir væri hann sjálfkrafa fastráðinn. Í þeim hópi sem sagt var upp hjá Flugfélaginu voru tíu fastráðnir flugmenn.
Líkt og komið hefur fram hefur Icelandair sagt upp 112 flugmönnum á árinu. Hjá félaginu munu starfa tæplega tvö hundruð flugmenn í vetur. Fyrstu uppsagnir þeirra tóku gildi í gær og var þar um sumarmenn að ræða. Flugmönnum hjá Icelandair mun fækka allt til 1. desember nk.
„Ég held að þetta sé dýpri niðursveifla en við höfum séð á undanförnum árum. Hún kemur í kjölfar mikillar uppsveiflu,“ sagði Jóhannes Bjarni Guðmundsson formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), um uppsagnir flugmanna hjá Icelandair. Hann sagði að starfsaldur þeirra sem sagt var upp hjá Icelandair hefði mestur verið 4–5 ár. Engir flugstjórar misstu vinnuna en 57 flugstjórar mundu færast í sæti flugmanna í vetur.
Jóhannes sagði litla atvinnu að hafa fyrir flugmenn hér á landi þessa dagana. „Atvinnutækifærin eru nú helst í Mið-Austurlöndum og í Asíu. Það eru fáir reiðubúnir að fara þangað, en eitthvað eru menn að skoða það,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að JetX, sem brátt mun heita Primera Air, hefði aldrei ráðið íslenska flugmenn.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 1. september 2008, Innlent Fleiri flugmönnum sagt upp
- Sunnudagur, 30. desember 2007, Innlent Ellefu fastráðnir flugmenn hætta
- Þriðjudagur, 23. september 2008, Innlent Erfiðir tímar í fluginu
- Sunnudagur, 31. ágúst 2008, Innlent 16 flugmönnum sagt upp hjá Icelandair
- Fimmtudagur, 25. júní 2009, Innlent Atvinnuöryggi flugmanna ekki neitt
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































