Kveikt var í húsi í tvígang

Kveikt var tvisvar í með stuttu millibili.
Kveikt var tvisvar í með stuttu millibili. Bæjarins Besta/Kristín Ósk


Lögreglan á Vestfjörðum hefur lokið vettvangsrannsókn vegna elds sem kom upp í tvígang með fimm daga millibili að Suðurtanga 2 á Ísafirði. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að um íkveikju af mannavöldum hafi verið að ræða í bæði skiptin. 

Það var kl. 17:12 miðvikudaginn 20. ágúst sl., sem tilkynnt var um eld í húsnæðinu í fyrra skiptið og aftur kl. 17:36 mánudaginn 25. ágúst.

Lögreglan á Vestfjörðum vinnur að rannsókn málsins og biður alla þá sem einhverja vitneskju hafa um þessi tvö tilvik að hafa samband í síma 450 3730.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert