Verkfall ljósmæðra hafið
Sérstök undanþágunefnd, sem í sitja fulltrúar ríkisins og ljósmæðra, fundaði í gærkvöldi um vaktir í verkfallinu. mbl.is
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„Fæðingardeild verður opin og þar verða ljósmæður á vakt,“ segir Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi [LSH]. Tveggja sólarhringa verkfall ljósmæðra hófst á miðnætt. Samningafundur verður haldinn hjá ríkissáttasemjara í dag kl. 10.
Verkfallið hefur það í för með sér að Hreiðrinu svokallaða, sem er fæðingar- og skammtíma sængurlegudeild á kvennasviði LSH, verður lokað. Konur í eðlilegu fæðingarferli hafa getað fætt og dvalið í Hreiðrinu ásamt maka sínum eða öðrum stuðningsaðila. Í verkfallinu verður engin slík þjónusta í boði. „Þótt þetta verði ekki í sömu umbúðum og áður verður þetta leyst því okkar helstu skyldur eru við sjúklingana,“ segir Björn Zoëga, staðgengill forstjóra LSH.
Skert þjónusta í mæðravernd
„Þjónustan er fyrst og fremst skert í mæðraverndinni,“ segir Anna. Mæðraverndin er eftirlit með verðandi mæðrum. „Þjónustan við fæðandi konur verður með örlítið öðrum hætti en venjulega, þannig að þær hafa minna val, en öllum fæðandi konum verður sinnt,“ bætir Anna við.
Hún segir að spítalinn muni búa svo um hnútana að sem minnst skerðing verði á þjónustu fyrir fæðandi konur. „Við munum taka á móti þeim konum sem til okkar leita, eins og við gerum allan ársins hring.“ Meðgöngudeildin á LSH, sem er hluti af mæðravernd, er lokuð í verkfallinu.
LSH hafði farið þess á leit við undanþágunefnd að Hreiðrið yrði áfram opið en það var niðurstaða fundar undanþágunefndar að fallast ekki á bón spítalans, en hins vegar fékkst ljósmóðir á bakvakt í Hreiðrið.
„Við erum einstaklega óánægð með að til verkfallsins hafi þurft að koma,“ segir Líf Gunnlaugsdóttir, verðandi móðir, en hún á von á sér í seinni hluta september. „Það er óþægilegt að missa það öryggi sem felst í því að hafa ljósmóðurina til taks á heilsugæslunni síðustu vikurnar á meðgöngunni,“ segir Líf.
Landlæknir mun hafa eftirlit með faglegum þáttum fæðingarþjónustunnar í verkfallinu en embættið hefur verið í nánu sambandi við stofnanir á undanförnum vikum og dögum svo og fagfélag ljósmæðra.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. september 2008, Innlent Nýbakaðar mæður finna mjög fyrir álaginu
- Þriðjudagur, 16. september 2008, Innlent Óvissan um fæðingu í verkfalli mjög óþægileg
- Föstudagur, 12. september 2008, Innlent Fæddi og fór strax heim til sín
- Miðvikudagur, 3. september 2008, Innlent Læknar lýsa yfir stuðningi við ljósmæður
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent Mikið álag á starfsfólki
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































