Fyrsta skóflustunga tekin að læknaminjasafni
Fyrsta skóflustungan var í morgun tekið að byggingu Lækningaminjasafns Íslands, sem á að rísa á safnasvæði Seltjarnarness við Nesstofu. Gert er ráð fyrir að safnhúsið, sem að auki mun nýtast undir aðra menningartengda starfsemi Seltjarnarnesbæjar, verði risið árið 2010. Ráðgert er að Nesstofa sem var reist á árunum 1761-1763 sem aðsetur Bjarna Pálssonar landlæknis verði hluti Lækningaminjasafns Íslands.
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands og Anna K. Jóhannsdóttir ritari Læknafélags Reykjavíkur tóku fyrstu skóflustunguna.
Bygging og rekstur Lækningaminjasafns Íslands er samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Íslands, Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags Íslands. Seltjarnarnesbær sér alfarið um og ber ábyrgð á byggingu safnhússins sem mun verða um 1600 fermetrar að stærð. Ásdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki arkitektum ehf. hlutu fyrstu verðlaun fyrir hönnun safnhússins í opinni hönnunarsamkeppni sem fór fram árið 1997. Hönnun burðarvirkis, frárennslis-, hreinlætis- og hitalagna er á höndum VSB verkfræðistofu.
Kostnaður við bygginguna er áætlaður 393 milljónir að frátöldum kostnaði við lóð og skiptist milli samstarfsaðilanna. Seltjarnarnes leggur til 110 milljónir auk lóðar og Læknafélögin leggja til 25 milljónir hvort. Menntamálaráðuneytið greiðir 75 milljónir. Þá rennur söluandvirði fasteignarinnar Bygggarðar 7 á Seltjarnarnesi í framkvæmdina, en fasteignin var keypt fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem arfleiddi Læknafélag Íslands að tilteknum eignum í erfðaskrá sinni. Læknafélagið færði síðar Þjóðminjasafninu arfinn til umsjónar.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Tanngarðar og gleraugu látinna lækna -
Haraldur Bjarnason Gömlum læknum safnað saman -
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Skóflustunga að nýjum skóla í Úlfarsárdal
- Laugardagur, 9. febrúar 2008, Innlent Skóflustunga að nýbyggingu HA
- Föstudagur, 6. júní 2008, Innlent Fyrsta skóflustunga að álveri
- Laugardagur, 10. maí 2008, Innlent Skóflustunga að nýju íþróttahúsi í Kópavogi
- Miðvikudagur, 5. mars 2008, Innlent Vekja athygli á skipulagsmálum á Seltjarnarnesi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































