Jarðgöng undir Dynjandisheiði myndi kosta 14 milljarða
Stystu, raunhæfu jarðgöng undir Dynjandisheiði yrðu líklega um 12 km löng og heildarkostnaður yrði yfir 14 milljarðar, ef ráðist yrði í slíka framkvæmd. Þetta kemur fram í skýrslu um hugmyndir um jarðgangaleiðir og vegtengingar um Dynjandisheiði sem birt hefur verið í tengslum við Fjórðungsþing Fjórðungssambands Vestfirðinga sem hefst í dag.
Þar kemur fram að það er mat Vegagerðarinnar að unnt sé að byggja heilsársveg yfir Dynjandisheiði, og við það hefur verið miðað í langtímaáætlunum. Áætlaður kostnaður er um 4 milljarðar. Vegurinn yrði þó með erfiðari fjallvegum landsins, í flokki með t.d. Steingrímsfjarðarheiði og Öxnadalsheiði.
Vegurinn sem
kenndur er við Dynjandisheiði er langur fjallvegur, og fer hann tvisvar
upp í 500 m hæð og einu sinni að auki í 468 m hæð. Í heild er heiðin
talin fremur snjólétt miða við Vestfirskar heiðar og landslag er víða
flatt þannig að hægt er að byggja veg upp úr snjó. Á einstökum stöðum
koma þó stórar fannir, auðvelt er að fara fram hjá flestum en nokkrar
geta verið erfiðar. Hvergi er snjóflóðahætta uppi á heiðinni en einn
staður er þekktur í Dynjandisdal. Víðar geta líklega komið smá spýjur.
Aðstæður
eru allt öðru vísi en á Hrafnseyrarheiði, svo ekki sé minnst á
Breiðadalsheiði. Þar hagar þannig til að efst í heiðunum eru brattir
sneiðingar, mjög snjóþungir með mikilli snjóflóðahættu. Dynjandisheiði
hefur verið lokuð á vetrum hingað til fyrst og fremst vegna
Hrafnseyrarheiðar og svo er einnig um 50 ára gamlan veg að ræða sem
ekki var hugsaður sem vetrarvegur og þolir illa snjómokstur.
Skýrsluna um hugmyndir að vegtengingum og jarðgöngum um Dynjandisheiði má nálgast í heild á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. júlí 2009, Innlent Dynjandisheiðarvegur í hálfa öld
- Miðvikudagur, 10. september 2008, Innlent Halda sig við veg yfir Dynjandisheiði
- Fimmtudagur, 6. ágúst 2009, Innlent Starfshópur skipaður um nýjan veg um Dynjandisheiði
- Miðvikudagur, 17. september 2008, Innlent Vegir víða lokaðir vegna vatnaskemmda
- Mánudagur, 8. september 2008, Innlent Sameining ótímabær eins og er
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































