Árni fellur frá málssókn á hendur Agnesi

Árni Johnsen.
Árni Johnsen.

Árni Johnsen, alþingismaður, hefur fallið frá stefnu á Agnesi Bragadóttur vegna ummæla, sem Agnes viðhafði um Árna í útvarpsþætti á Bylgjunni fyrr á þessu ári.  Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem Árni hefur sent frá sér. Til stóð að þingfesta stefnuna í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni en Árni krafðist 5 milljóna króna í miskabætur.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

„Undirritaður ætlar að fyrirgefa Agnesi Bragadóttur ósmekklegt orðaval í minn garð. Agnes hefur m.a. kallað mig stórslys, en það er svo sem vægt til orða tekið um mig og nánast hrósyrði úr einstöku fúkyrðasafni hennar. Maður á ekki að elta ólar við fólk sem hefur yndi af illmælgi.

Agnes hefur alltaf verið mjög linfróm í mannasiðum og hefði þess vegna, jafnvel með dómsorði, haft gott af því að vera minnt á að hún er aðeins jafningi meðal jafningja.

Agnes hefur klárlega brotið lög með orðbragði sínu og skíthroða í minn garð. Svona er innræti Agnesar en við erum gamlir starfsfélagar og ég veit ekki um neitt illt á milli okkar frá þeim tíma,enda varði ég hana oft. Hún á nógu erfitt með sjálfa sig þó ég fari ekki að þyngja þá bagga. Agnes á mjög brjóstgóða takta þannig að hennar svið er vítt og vinalegt á margan hátt þótt slíkt sé alltaf afstætt í stærðum. Þökk sé Einari Huga Bjarnasyni hdl. fyrir vandaðan undirbúning stefnu og fróðlegt væri að láta reyna á þau lög sem banna umfjöllun um málsatvik hjá fólki sem hefur gert upp að fullu við dómskerfið og hlotið uppreist æru, banna umfjöllun að viðlögðum sektum eða fangelsi.

Í ljósi þess að mér finnst skemmtilegra að skemmta fólki en skrattanum þá geri ég allt sem í mínu valdi stendur til þess að komast hjá því að hitta Agnesi Bragadóttur og fell því frá boðaðri stefnu um meiðyrði um leið og ég bið henni alls góðs og varúðar í munnhálkunni því það er skreypt á skötunni frá kjafti og afturúr.

Árni Johnsen"


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert