Kristín Helga fékk barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins
Kristín Helga Gunnarsdóttir ásamt Karli V. Matthíassyni, formanni Vestnorræna ráðsins og Silju Aðalsteinsdóttur, sem situr í dómnefnd verðlaunanna.
Bókin Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hlaut í dag Barna- og unglingbókaverðlaun Vestnorræna ráðsins. Um er að ræða alþjóðleg verðlaun, sem eru veitt annað hvert ár og stendur því valið milli bóka sem gefnar hafa verið út á tveggja ára tímabili í þremur löndum: Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Verðlaunin nema 1 milljón króna.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að bókin sé kærkomin fyrir unglinga á öllum aldri, sagan sé full af mótsetningum þar sem draumur og veruleiki skarist áþreifanlega en samspil þeirra hjálpar til við að leysa leyndardóminn í bókinni. Dómnefndin leggur jafnframt áherslu á að bókin taki fyrir hversdagsleg málefni, svo sem vanda einstæðra foreldra og barna þeirra.
Dómnefndin er einkar hrifin af því hvernig Kristín Helga Gunnarsdóttir fléttar íslenskan þjóðsagnaarf fimlega inn í söguna, grefur djúpt í gamlar sagnir og skapar skáldsögu sem styðst við sagnirnar og þá staði sem sögurnar eru tengdar. Segir dómnefndin að Draugaslóð sé auðug saga af líflegum og sterkum persónum sem lesendur trúa á, stíllinn leikandi og fagmannlegur, tilgerðarlaus en þó ávallt fallegur.
Þetta er í fjórða skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár. Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipaði Oddfríður Marni Rasmussen frá Færeyjum, Vera Lise Rosing Olsen frá Grænlandi og Silja Aðalsteinsdóttir frá Íslandi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. desember 2007, Innlent Draugaslóð tilnefnd til verðlauna
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Bókin Draugaslóð tilnefnd til verðlauna
- Mánudagur, 27. október 2008, Innlent Norðurlönd eiga að styðja Ísland
- Miðvikudagur, 22. ágúst 2007, Innlent Karl V. Matthíasson kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins
- Mánudagur, 31. ágúst 2009, Innlent Vestnorrænar þjóðir auki samstarf
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































