Kynnir mannréttindanefnd SÞ afstöðu Frjálslynda flokksins
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, hefur sent Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna bréf þar sem hann kynnir og ítrekar afstöðu flokksins vegna niðurstöðu nefndarinnar varðandi fiskveiðistjórnunarkerfið á Íslandi.
Í bréfinu segir m.a., að skoðanakannanir hafi sýnt það í meir en 15 ár, að mikill meiri hluti íslensku þjóðarinnar sé á móti núverandi kvótakerfi. Sá þjóðarvilji hafi ekki náð fram að ganga í breyttri lagasetningu vegna þess að hagsmunaöflin í sjávarútvegi og stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar hafi verið svo sterk.
Í ríkisstjórn Íslands sitja í dag tveir flokkar. Sjálfstæðisflokkurinn hafi barist fyrir fiskveiðistjórnunarkefinu en Samfylkingin verið á móti því áður en flokkurinn fór í samsteypustjórn með Sjálfstæðisflokknum. Við umræður á Alþingi hafi allir talsmenn flokka stjórnarandstöðunnar lýst því yfir að nauðsynlegt sé að breyta kerfinu þannig að það samræmist mannréttindum. Þess vegna megi ætla, að meiri hluti þingmanna sé fylgjandi breytingum þó sá þingvilji nái ekki fram að ganga vegna þess að stjórnarsáttmáli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks taki fyrir róttækar breytingar á kerfinu.
Frjálslyndi flokkurinn segist telja, að fara eigi eftir áliti Mannréttindanefndar SÞ og breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu þannig að það sé í samræmi við mannréttindi. Einnig beri að greiða þeim aðilum bætur sem orðið hafi fyrir tjóni af völdum kerfisins.
„Ríkisstjórnin hefur ekki brugðist við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðarinnar. Þingflokkur Frjálslynda flokksins mótmælir því og harmar að ríkisstjórnin bregðist ekki við og taki að öllu leyti tillit til álits mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í þessu máli. Svar ríkisstjórnarinnar til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 9.6. 2008 er að mati Frjálslynda flokksins ómerkilegt yfirklór yfir aðgerðarleysi í málinu og aumkunarverð afsökun á því að íslenska ríkisstjórnin hvorki hefur né ætlar að bregðast við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna með þeim hætti sem álit mannréttindanefndarinnar Sameinuðu þjóðanna frá 24. október 2007 kveður á um í ofangreindu máli,“ segir í tilkynningu frá flokknum.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. janúar 2008, Innlent Ómálefnalegt að tengja saman öryggisráð og mannréttindanefnd SÞ
- Mánudagur, 18. febrúar 2008, Innlent Frjálslyndir fagna úrskurði mannréttindanefndar SÞ
- Fimmtudagur, 12. júní 2008, Innlent Segja stjórnvöld áfram brjóta mannréttindi
- Þriðjudagur, 22. janúar 2008, Innlent Rætt um álit mannréttindanefndar SÞ á Alþingi
- Mánudagur, 9. júní 2008, Innlent Svar sent til mannréttindanefndar SÞ
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































