Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra opnaði formlega nýtt húsnæði Göngudeildar Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) á Dalbraut 12 í Reykjavík í dag.
Húsnæði BUGL fer nálægt því að þrefaldast að stærð við flutninginn og mun viðbótin bæta alla aðstöðu, ekki síst við móttöku sjúklinga. Nýbyggingin kemur einnig legudeildum BUGL, bæði barna- og unglingadeild, til góða því þær munu fá til afnota um 400 m2 sem göngudeildin hefur notað til þessa.
Nýja göngudeildin verður opin almenningi til skoðunar á morgun kl. 14-16.