Hald lagt á peninga við húsleit
Við húsleit á sjö dvalarstaði hælisleitenda í Reykjanesbæ í morgun lagði lögreglan hald á vegabréf, önnur persónuskilríki, ýmis skjöl og reiðufé í ýmsum gjaldmiðli að andvirði rúmlega 1,6 milljóna króna. Alls tóku 58 lögregluþjónar frá þremur embættum þátt í aðgerðunum í morgun.
Lögreglumenn frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og frá Ríkislögreglustjóra tóku þátt í húsleit á 7 dvalarstöðum hælisleitenda í Reykjanesbæ í morgun en aðgerðirnar hófust klukkan 7:30. Voru húsleitirnar sameiginlegt verkefni lögregluembættanna þriggja auk Útlendingastofnunar og höfðu verið vandlega undirbúnar og framkvæmdar á grundvelli fyrirliggjandi dómsúrskurða frá Héraðsdómi Reykjaness.
Meginmarkmið húsleitanna var að leita persónuskilríkja og annarra gagna til að bera kennsl á hælisleitendur en lögregla hefur rökstuddan grun um að hælisleitendur komi slíkum gögnum undan og framvísi þeim ekki við yfirvöld meðan á hælismeðferð stendur.
Segir í tilkynningu frá lögreglu að húsleitirnar hafi verið mjög árangursríkar og gekk framkvæmd þeirra vel í alla staði. Þau gögn sem lögregla lagði hald á muni gera Útlendingastofnun kleift að hraða úrlausn fjölda þeirra mála sem stofnunin hafi til meðferðar og taka ákvarðanir á réttum forsendum. Verulegur fjárhagslegur ávinningur sé af því að hraða meðferð hælismála hjá Útlendingastofnun.
Húsleitum lögreglu lauk um kl. 09:15.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Skemmtigarður opnaður í Grafarvogi
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent Rannsóknarboranir næsta sumar?
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent Vilja jafnræði kynjanna við skipan í bankaráð
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Hárrétt ákvörðun
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Vel ígrunduð ákvörðun
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur






































