Launahækkanir umfram kjarasamninga

Jón Emil Sigurgeirsson umsjónamaður launakannana hjá ParX. stækka

Jón Emil Sigurgeirsson umsjónamaður launakannana hjá ParX.

Laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um 23% á árunum 2005-2007 sem er nokkuð umfram kjarasamninga á tímabilinu, að því er fram kemur í launakönnun ParX viðskiptaráðgjafar IBM. Þá hafa laun opinberra starfsmanna hækkað um 19% á sama tíma samkvæmt Hagstofunni.

Meðal ástæðna fyrir hækkunum á vinnumarkaði síðustu ár er lítið atvinnuleysi og aukin starfsmannavelta. Nú bendir hins vegar allt til þess að launaskrið síðustu ára sé liðið og að launahækkanir verði minni en áður, að því er segir í tilkynningu frá ParX.

„Launakönnun ParX, sem hefur verið framkvæmd árlega frá 1979, byggir á upplýsingum úr launakerfum rúmlega 100 fyrirtækja úr ýmsum starfsgreinum. Könnunin er ekki viðhorfskönnun starfsmanna á almennum vinnumarkaði heldur er stuðst við gögn beint úr launakerfum fyrirtækja sem gefa raunhæfa mynd af þróun launa á íslenskum vinnumarkaði," samkvæmt tilkynningu.

Í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði frá 2004 var gert ráð fyrir að laun hækkuðu á bilinu 16-20%  fram til ársins 2008. Þá gerðu helstu kjarasamningar ríkisins, samningar við grunnskólakennara, félag leikskólakennara, SFR, 24 félög innan BHM og framhaldsskólakennara, sem undirritaðir voru 2004 ráð fyrir meðaltalshækkun upp á 21%.„Þróunin hefur hins vegar orðið á  þann veg að laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað umfram það," segir Jón Emil Sigurgeirsson umsjónamaður launakannana hjá ParX.

Hann segir að á síðasta ári hafi laun opinberra starfsmanna hækkað um 7,4% samkvæmt gögnum Hagstofunnar og laun á almennum markaði, samkvæmt könnun ParX, hækkað um 10,8%.

„Hækkanir voru mestar hjá sérfræðingum og minnstar hjá sölu- og afgreiðslufólki. Fyrirtæki hafa því hækkað laun starfsmanna umfram það sem samið var um. Ástæður hækkana eru fjölbreyttar og ekki er hægt að alhæfa um hvaða veldur. Hins vegar teljum við líklegt að lítið atvinnuleysi og aukin starfsmannavelta séu þættir sem hafa áhrif á launahækkanir. Við höfum t.d. séð að starfsmannavelta á meðal sérfræðinga hefur aukist undanfarin ár og það er líklegt til að hafa áhrif á launaþróun þessa starfshóps.“

Miðað við kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins (SA) sem undirritaðir voru í febrúar á þessu ári var gert ráð fyrir að laun hækkuðu um 5,5% á þessu ári. Kjarasamningar flestra stéttarfélaga starfamanna ríkisins og sveitarfélaga gerðu ráð fyrir 2%-3% hækkun launataxta frá 1. janúar 2008 á þessu ári. Samningar aðildarfélaga BSRB og BHM á þessu ári fólu hins vegar í sér hækkun launataxta um 20.300 kr. auk annarra kostnaðarliða. 

„Ný launakönnun ParX fyrir árið 2008 fer af stað í september og er skilafrestur gagna þann 15. október. Það verður áhugavert að sjá hver þróunin verður en margt bendir til þess að launaskrið síðustu ára sé liðið,”segir Jón, í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Juki hraðsaumavél til sölu
Juki hraðsaumavél DLU-450 til sölu. Mjög lítið notuð. Frekari upplýsingar hjá Si...
TOYOTA COROLLA 1600
Toyota Corolla 1600 sjálfskiptur, til sölu. Nýskráður 0...
Hyundai Sonata 2008 sjálfskiptur til sölu ekinn 77.000 km.
Svartur glæsilegur Hyundai Sonata árg. 2008, sjálfsk. til sölu. Dekurbíll, vel v...
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....