Mátti ekki framlengja að áskrifanda forspurðum
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest þá niðurstöðu Neytendastofu, að Birtíngur útgáfufélag hafi brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins með því að framlengja tímabundna áskrift einstaklings að tímariti án þess að bera það undir áskrifandann.
Um er að ræða konu, sem keypti 12 mánaða áskrift að tímaritinu Veggfóðri hjá Birtíngi og greiddi áskriftina fyrirfram vegna ársins 2007. Síðar á samningstímabilinu var tímaritið sameinað tímaritinu Húsum og híbýlum, sem Birtíngur gefur einnig út.
Konan segist hafa orðið þess áskynja, eftir að árinu lauk, að greiðslur fyrir áskrift að Húsum og híbýlum voru skuldfærðar á greiðslukort hennar að henni forspurðri. Hún hefði óskað skýringa á því og fengið þau svör að áskrift hennar hefði haldið áfram eftir að hinum tímabundna samningi lauk. Væri það hluti af almennum skilmálum við áskriftarsölu félagsins að tímabundin áskrift breyttist í ótímabundna og þyrftu áskrifendur að segja áskriftinni upp sérstaklega vildu þeir ekki fá blaðið sent áfram í áskrift.
Konan sætti sig ekki við þetta og kærði til Neytendastofu, sem taldi ósannað að við gerð hins tímabundna áskriftarsamnings hafi verið sett það skilyrði, að segja þyrfti áskriftinni upp að loknum umsömdum binditíma. Því hefði Birtíngur brotið gegn umræddum lagaákvæðum með því að gefa fyrirmæli um úttekt greiðslna af greiðslukorti áskrifandans sem nam andvirði þriggja tölublaða Húss og Híbýla eftir að umsömdu áskriftartímabili lauk.
Birtíngur áfrýjaði til úrskurðarnefndarinnar sem hefur nú staðfest niðurstöðu Neytendastofu.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Skilmálar myntkörfulána voru ólögmætir
- Mánudagur, 20. júlí 2009, Innlent Staðfestir brot starfsmanns Petersen
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Staðfest að Reykjanesbær má nota nafnið Vatnaveröld
- Mánudagur, 24. september 2007, Innlent Úrskurður Neytendastofu gegn Heimsferðum staðfestur
- Fimmtudagur, 28. ágúst 2008, Innlent Fullyrðingar um sólarvörn bannaðar í auglýsingum
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































