Lækjargata 2 tekin niður
Húsin við Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 eyðilögðust í eldinum. Sverrir Vilhelmsson
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Borgaryfirvöld hafa veitt leyfi til þess að taka niður húsið Lækjargötu 2, vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar á húsinu. Minjavernd hefur tekið að sér að stjórna verkefninu.
Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, segir að nú sé verið að fara yfir stöðuna og ákveða í smærri atriðum hvernig staðið verði að verkinu. Brátt ljúki fornleifarannsóknum á næstu lóð að Austurstræti 22 og þá verði hægt að byrja á verkinu.
Fyrsta skrefið verði að fara inn í Lækjargötu 2 og hreinsa allt út úr húsinu en ekki hefur verið hreyft þar við neinu síðan miðbæjarbruninn mikli varð 18. apríl 2007. Að því loknu verði húsið mælt hátt og lágt og ástand þess metið.
Að sögn Þorsteins er húsið í raun samsafn 5-6 bygginga, þótt það sé í einni heild í dag. Ekki sé ætlunin að rífa húsið niður í frumeindir. Hugmyndin sé sú að reyna að ná sem mestu af elsta hluta hússins og flytja hann á heppilegan stað til viðgerða og endurbóta. Hann verði svo fluttur á sinn stað að viðgerð lokinni.
Þá hafa borgaryfirvöld einnig gefið leyfi til þess að fjarlægja í heilu lagi hlaðið eldstæði, sem er það eina sem eftir stóð af húsinu nr. 22 við Austurstræti, í kjölfar brunans mikla. Að sögn Þorsteins er þetta merkilegt mannvirki, enda elsta eldstæðið sem vitað er um innan borgarmarkanna.
Bloggað um fréttina
-
Jón Finnbogason Það var mikið -
-
Heimir L Fjeldsted Lækjargata 2 rifin -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Góðar fréttir, enda gott veður í dag.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 25. apríl 2009, Innlent Húsið Lækjargata 2 er geymt í gámum
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Timburþilið lækkað
- Þriðjudagur, 4. desember 2007, Innlent Veggurinn fékk ekki frið eftir að húsamyndin skemmdist
- Fimmtudagur, 22. maí 2008, Innlent Kaup á Lækjargötu 2 samþykkt
- Miðvikudagur, 9. apríl 2008, Innlent Nýtt deiliskipulag Kvosarinnar auglýst
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































