Rithöfundar hvetja til aðgerða
Barnaheill, Save the Children og rithöfundar víða um heim hafa tekið höndum saman og hvetja til aðgerða til að tryggja öllum börnum skólagöngu fyrir árið 2015, eins og eitt af þúsaldarmarkmiðum SÞ gerir ráð fyrir.
Rithöfundarnir hafa skrifað undir bréf, til leiðtoga ríkja heims og Ban-Ki Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að herða róðurinn í baráttu gegn ólæsi og skorti á menntun.
Pétur Gunnarsson, rithöfundur, afhenti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur áskorunina með undirskrift 45 íslenskra rithöfunda, en utanríkisráðherra og forsætisráðherra sækja Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna síðar í mánuðinum þar sem þúsaldarmarkmiðin verða til umræðu.
„Ef það er eitthvað sem við Íslendingar getum miðlað heiminum þá er það vitneskjan um mikilvægi læsis,” sagði Pétur við afhendingu undirskriftarlistans. Alls hafa 250 rithöfundar víðsvegar um heim skrifað undir áskorunina til Sameinuðu þjóðanna, samkvæmt fréttatilkynningu.
„Nú eru aðeins sjö ár til stefnu til að ná þúsaldarmarkmiði SÞ, um að öll börn í heiminum njóti sömu tækifæra til grunnmenntunar. Enn eru 72 milljónir barna þó utan skólakerfis, og 37 milljónir þeirra búa í löndum þar sem átök ríkja eða hafa ríkt. Þó í stríðshrjáðum löndum búi helmingur þeirra barna sem eru án skólagöngu fer ekki nema 20% af menntunarframlagi ríku þjóðanna til barna í þeim löndum. Börn í stríðshrjáðum löndum eru þannig skilin eftir með litla von um að brjótast úr vítahring fátæktar og átaka,” segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Save the Children á Íslandi, í tilkynningu.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent Nýtt söfnunarátak Barnaheilla
- Þriðjudagur, 6. október 2009, Innlent Rósin afhjúpuð í Laugardal
- Þriðjudagur, 27. janúar 2009, Innlent Barnaheill harma sýknudóminn
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent Ísland niður um eitt sæti á lista yfir stöðu mæðra
- Þriðjudagur, 19. ágúst 2008, Innlent Barnaheill harma dómsniðurstöðu
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































