Lágmarksframfærslutrygging hækkar
Húsnæði Tryggingastofnunar. mbl.is/Árni Torfason
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð sem tryggir lífeyrisþegum ákveðna lágmarksframfærslu á mánuði. Eftir breytinguna verður lágmarksframfærslutrygging einstaklinga 150.000 krónur á mánuði í stað ríflega 137.000 króna áður, og hjóna 256.000 krónur á mánuði í stað 224.000 króna áður.
Verkefnisstjórn sem skipuð var af félags- og tryggingamálaráðherra og vinnur að endurskoðun almannatryggingakerfisins var í mars á þessu ári falið að móta tillögur að sérstöku lágmarksframfærsluviðmiði fyrir lífeyrisþega og skyldi það meðal annars taka tillit til hækkunar lægstu launa í síðustu kjarasamningum. Reglugerðin byggist á tillögum nefndarinnar.
Lágmarksframfærslutryggingin er veitt með greiðslu sérstakrar uppbótar frá Tryggingastofnun ríkisins. Við útreikning uppbótarinnar eru lagðar saman allar tekjur lífeyrisþegans, þ.e. bætur almannatrygginga, uppbót á eftirlaun, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnutekjur og fjármagnstekjur.
Lágmarksframfærslutryggingin hækkar árlega á sama hátt og bætur almannatrygginga og verður næsta hækkun 1. janúar 2009. Skal hækkunin taka mið af launaþróun en jafnframt skal tryggt að hækkunin sé aldrei minni en nemur hækkun neysluvísitölu.
Samtals munu rúmlega um 4000 einstaklingar fá greiðslur á grundvelli reglugerðarinnar. Þar af eru um 2100 ellilífeyrisþegar og tæplega 1900 örorkulífeyrisþegar.
Þeir sem njóta mests ávinnings af þessari breytingu eru öryrkjar sem hafa lága aldurstengda örorkuuppbót. Áætlað er að tekjur rúmlega 750 örorkulífeyrisþega muni hækka um 10.000 krónur eða meira á mánuði. Hækkun til þeirra getur að hámarki numið um 16.000 krónum á mánuði.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Lágmarksframfærslutryggingin hækkar !!!!! -
Ágúst Ólafur Ágústsson Mikilvægt skref tekið í velferðarmálum
Innlent »
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. mars 2008, Innlent Lífeyrir almannatrygginga hækkar
- Mánudagur, 29. desember 2008, Innlent Bætur hækka um 9,6%
- Miðvikudagur, 24. september 2008, Innlent Heita vatnið hækkar um 9,7%
- Þriðjudagur, 30. júní 2009, Innlent Skeljungur hækkar um 12,50
- Miðvikudagur, 10. júní 2009, Innlent Skeljungur hækkar á ný
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman




































