Ríki og ferðaþjónusta taka höndum saman

mbl.is

„Okkur þótti rétt, í tilefni af þessari sýningu, að tilkynna það að ferðaþjónustan og ríkisstjórnin hafa tekið höndum saman um að verja sameiginlega að minnsta kosti 100 milljónum króna í sameiginlegt átak til þess að reyna að fá fleiri útlendinga til að velja Ísland sem áfangastað núna í vetur,“ sagði Össur Skarphéðinsson, iðnaðar og ferðamálaráðherra, á ferðakaupstefnunni Vestnorden sem nú er haldin í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda.

Össur sagði jafnframt að alkunna væri að blikur væru á lofti í efnahagsmálum heimsins og ákveðinn kvíði væri í ferðaþjónustunni.

„Hún hefur gengið vel og er ákaflega mikilvæg fyrir okkur en fulltrúar hennar hafa tjáð mér sem ferðamálaráðherra að þeir  beri mikinn kvíðboga fyrir vetrinum. Þess vegna hefur ríkisstjórnin ákveðið að verja úr sínum sjóðum 50 milljónum króna og ferðaþjónustan kemur á móti með að minnsta kosti sömu upphæð. Þetta fer allt saman í það að kynna Ísland á helstu markaðssvæðum okkar; á Bretlandseyjum, á Norðurlöndunum, í Evrópu annars staðar og, að sjálfsögðu, í Bandaríkjunum,“ sagði Össur og bætti við að miklar væntingar væru gerðar til samstarfsins.

Ferðamálastjóri hefur séð um útfærslu samstarfsins og Össur þakkaði honum og þeim sem við ferðaþjónustu starfa gríðargott samstarf.

„Þetta sýnir það að ríkisstjórnin hefur hlustað á atvinnugreinina og hún er líka með þessu handtaki og liðsinni að sýna það að hún meinar það sem hún segir þegar hún hefur lýst því yfir að hún ætlar sér að styrkja stoðir ferðaþjónustunnar. Þetta er einungis eitt skref. Ég vona að ferðaþjónustan sjái að þó að hart sé í ári núna að þegar næsta fjárlagafrumvarp lítur dagsins ljós eftir nokkrar vikur að ríkisstjórnin stendur við það sem hún segir,“ sagði Össur.

Um 560 þátttakendur taka nú þátt í Vestnorden-ferðakaupstefnunni, sem er sú 23. í röðinni. Ferðamálayfirvöld á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum hafa staðið fyrir kaupstefnunni árlega í rúma tvo áratugi. Ferðamálasamstök Norður-Atlantshafsins (NATA) sem stofnuð voru af löndunum þremur í ársbyrjun 2007 og tóku þá m.a. við starfsemi Vestnorræna ferðamálaráðsins. Vestnorden er haldin til skiptis í Grænlandi, Færeyjum og á Íslandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
Í gær, 14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Peougut 406. Sjálfskiptur, nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Peougut 406 árg. 1997, ekinn 169 þúsund km. Bíllinn er sjálfskiptur og ...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Finnsbúð 15 Þorlákshöfn
Til sölu skemmtileg eign í Þorlákshöfn. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Um e...
VW TRANSPORTER 4X4 DÍSIL 2006
Til sölu VW TRANSPORTER KASTEN SYNCRO Dísil árg. 2006 með fjórhjóladrifi ekinn ...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...