Ríkislögreglustjóri boðar miðstýringu
Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir Harald Johannessen ríkislögreglustjóra boða miðstýringu.
„Hugmyndir hans um að lögreglan verði ein stofnun undir stjórn ríkislögreglustjóra og að fjárveitingar til lögreglumála færist til embættis ríkislögreglustjóra eru miðstýring. Þetta er framtíðarsýn sem ég hræðist,“ segir Jóhann.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, er þeirrar skoðunar að öll starfsemi sem snýr að almennri eða sérhæfðri löggæslu eigi að vera hjá lögregluembættunum til þess að ríkislögreglustjóraembættið hafi betri forsendur til að sinna stjórnsýsluverkefnum, eftirliti, samræmingu og samhæfingu og öðru slíku.
Ríkislögreglustjóri segir í skriflegu svari við fyrirspurn 24 stunda um mögulegar breytingar á verkefnum lögregluembætta að undir fyrrgreindu fyrirkomulagi gæti embætti hans falið einstökum lögreglustjórum enn frekari verkefni í sínu umboði.
„Kanna þyrfti rækilega kosti og galla þessarar skipunar, en ríkislögreglustjóri hefur ekki séð efnislega sterk rök fyrir því að færa landsvísuverkefni undir núverandi skipan til staðarlögreglustjóra,“ segir í svari ríkislögreglustjóra.
Engin efnisleg rök
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum kveðst hins vegar telja að engin efnisleg rök séu fyrir því að lögreglunni verði miðstýrt frá Reykjavík, eins og hann orðar það. „Það eru engin rök fyrir því frekar en að öllum sjúkrahúsum eða skólum sé miðstýrt frá Reykjavík. Það er þvert á móti mjög mikilvægt að skerpa hlutverk ríkislögreglustjóra til samræmingar og eftirlits á landsvísu. Lögreglustjórn á sama tíma samræmist ekki þeim störfum. Öll lögreglustjórn á að vera í höndum lögreglustjóranna,“ leggur Jóhann áherslu á.Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. september 2008, Innlent Baksvið: Sagan bak við deiluna á Suðurnesjum
- Miðvikudagur, 24. september 2008, Innlent Ekki fráleit hugmynd að sérsveitin lúti stjórn LRH
- Föstudagur, 12. september 2008, Innlent Vill enn færri lögregluembætti
- Föstudagur, 15. maí 2009, Innlent Sérsveitin fær æfingaaðstöðu á Miðnesheiði
- Þriðjudagur, 23. september 2008, Innlent Jóhann R. boðar starfsmannafund á morgun
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































