Framleiðslan eykst um 40 þúsund tonn í Straumsvík
Framleiðsla álversins í Straumsvík mun aukast um 40 þúsund tonn á ári vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins. Framkvæmdirnar, sem gert er ráð fyrir að hefjist á næsta ári, verða innan byggingarreits samkvæmt deiliskipulagi.
„Stækka á aðveitustöðina þar sem rafmagnið kemur inn í austur og norður auk þess sem einhverjar breytingar verða gerðar milli kerskála. Áhugaverðast fyrir okkur er endurnýjun þurrhreinsibúnaðarins,“ segir Gísli Ó. Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar sem fjallaði um erindi Alcan um stækkunina í síðustu viku.
Í stað 30 m hárra strompa verða settir strompar sem eru 41 m að hæð. „Við lítum svo á að útblásturinn minnki og það er fagnaðarefni,“ segir Gísli.
Fyrirtækinu til skammar
Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi, segir stækkunina staðfesta það sem samtökin hafi áður bent á. „Forstjóri Alcan, Rannveig Rist, sagði fjórum dögum fyrir kosningarnar í mars í fyrra að mögulega væru örfá ár eftir í rekstrinum. Þetta var sagt til þess að hræða starfsmenn og Hafnfirðinga til þess að fá þá til að samþykkja stækkun. Nokkru áður, eða í janúar, sagði Rannveig að álverið í Straumsvík myndi lifa lengur en álver af svipaðri stærð vegna sérhæfðrar framleiðslu. Í aðdraganda kosninganna var skipt um baráttuaðferð. Stækkunin nú staðfestir að henni var ekki alvara með því sem hún sagði rétt fyrir kosningarnar. Þetta var í raun hótun sem er fyrirtækinu til skammar,“ segir Pétur sem tekur það fram að í raun ætti fyrirtækið að kynna bæjarbúum breytingarnar.„Auðvitað eru menn ekki í aðstöðu til þess að fetta fingur út í að menn auki framleiðsluna að öðru leyti en því að fyrirtækið fékk skilaboð í lýðræðislegum kosningum um að íbúarnir vildu ekki þessa stækkun sem stóð til,“ bætir hann við.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Hætt við stækkun í Straumsvík
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Frétt um álver ekki allskostar rétt
- Þriðjudagur, 25. nóvember 2008, Innlent Samningar við Rio Tinto Alcan á lokastigi
- Fimmtudagur, 16. október 2008, Innlent Fólk staldri við stóra ákvörðun um álverið
- Sunnudagur, 20. apríl 2008, Innlent 200 MW orkusala úr sögunni
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































