Krossá þrefaldaðist á hálfum sólarhring
Frá Þórsmörk mbl.is/Brynjar Gauti
„Staðkunnugir segjast ekki hafa séð annað eins,“ segir Berglind Guttormsdóttir, skálavörður Ferðafélags Íslands í Langadal í Þórsmörk, en Krossá þrefaldaðist á aðeins hálfum sólarhring, frá því síðdegis í gær þar til snemma í morgun, með þeim afleiðingum að ófært er inn í Þórsmörk.
Að sögn Berglindar var vitlaust veður í nótt í Þórsmörk, en veðrinu slotaði í morgunsárið. Segist hún aldrei hafa séð Krossá svo umfangsmikla, en áin náði allt upp að bílaplani. Aðspurð segist Berglind ekki vita til þess að áin hafi valdið neinum skemmdum og enginn hafi skaðast. Ferðafélagið hefur beint þeim tilmælum til ferðalanga að þeir sýni aðgát og varfærni í ferðum sínum um svæðið og leggi alls ekki í árnar í þeim vexti sem þær eru nú.
Spurð um skólahópinn sem dvelur í Langadal segir Berglind um að ræða 30 grunnskólakrakka á aldrinum 14-15 ára. „Hópurinn kom í fyrradag og hugðist halda heim í dag, en af því verður ekki fyrr en í fyrsta lagi á morgun,“ segir Berglind. Hún segir stemninguna í skálanum góða og ljóst að krökkunum leiðist það ekki að fá að dvelja aukanótt í Þórsmörk. „Þau röltu yfir í Húsadal í góðu veðri í dag og fóru þar í náttúrulegu laugina sem þar er.“
Að sögn Berglindar munu starfsmenn Vegagerðarinnar skoða umsvif Merkuránna á morgun og reyna að lagfæra vegarstæði milli ánna og í ánum sjálfum.
Bloggað um fréttina
-
Eiður Svanberg Guðnason Háðung ! -
Helga R. Einarsdóttir Skálavörður eða blaðamaður á rangri hillu? -
Erna Björg Kjartansdóttir þórsmerkur fljót
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. september 2008, Innlent Ófært inn í Þórsmörk
- Föstudagur, 19. september 2008, Innlent Skólabörnin komin til byggða
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent Illfært í Þórsmörk
- Mánudagur, 10. ágúst 2009, Innlent Rúta dregin upp úr Krossá
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent „Allir lækir eins og stórfljót"
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































