Sveitarfélögum boðið að kaupa nemakort hjá Strætó
Sveitarfélög sem standa utan byggðarsamlagsins Strætó bs. geta nú í fyrsta skipti sótt um að kaupa nemakort fyrir þá íbúa sína sem stunda viðurkennt nám á framhalds- eða háskólastigi á höfuðborgarsvæðinu. Tillaga þessa efnis var samþykkt á síðasta stjórnarfundi Strætó bs. Hvert nemakort kostar 31.000 krónur og gildir til 1. júní 2009.
Vilji sveitarfélög kaupa nemakort í strætó fyrir námsmenn sína óska þau skriflega eftir því við Strætó bs. Við móttöku erindisins opnast sá möguleiki að íbúar viðkomandi sveitarfélags sem eru nemendur í viðurkenndu námi á framhalds- eða háskólastigi á höfuðborgarsvæðinu geti sótt um nemakort á vefsvæðinu Strætó.is. Hingað til hefur skilyrði fyrir umsókn um nemakort verið að viðkomandi nemandi sé með lögheimili í sveitarfélagi sem á í samstarfi um nemakortin, þ.e. Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ eða Álftanesi, að því er segir í tilkynningu.
Rekstrarkostnaður Strætó þrír milljarðar króna á ári
Kostnaður við rekstur strætisvagnakerfis höfuðborgarsvæðisins er ríflega 3.000 milljónir króna á ári, eða sem nemur rúmlega 15 þúsund krónum á hvern íbúa á svæðinu. Reglulega nýta rúmlega 30 þúsund einstaklingar þjónustu Strætó bs. og miðað við núverandi rekstrarkostnað nemur því kostnaður á hvern einstakling sem notar strætó reglulega um 100 þúsund krónum á ári. Með því að veita námsmönnum sem búsettir eru utan sveitarfélaganna sem reka Strætó bs. aðgang að nemakortakerfinu eru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu því að niðurgreiða raunkostnað við notkun hvers nemanda um nær 70%.
„Nemakortin hafa notið vinsælda og því er afar jákvætt að geta nú boðið öðrum sveitarfélögum að taka þátt með þessum hætti. Um leið viljum við leggja áherslu á að þetta verkefni er kostnaðarsamt fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, sem greiða þessa upphæð, 31.000 krónur, fyrir hvern nemanda sveitarfélagsins sem sækir um nemakort auk þess að niðurgreiða rekstur Strætó bs. almennt. Því er eðlilegt að sveitarfélög sem vilja bjóða nemendum aðgang að nemakortinu taki þátt í að greiða hluta kostnaðarins með þessum hætti,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs, í tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Akureyringar greiði fyrir sína nemendur í Reykjavík -
Jón Ingi Cæsarsson Á Akureyri fá allir frítt... líka íbúar frá höfðuborgarsvæðinu.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent Vilja jafnræði kynjanna við skipan í bankaráð
- Þriðjudagur, 9. desember 2008, Innlent Heildsala innkallar kerti
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Vel ígrunduð ákvörðun
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Skemmtigarður opnaður í Grafarvogi
- Miðvikudagur, 27. maí 2009, Innlent Vilja að ríkið styðji Strætó
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































