Guðjón Arnar: Miðstjórnin skiptir ekki verkum milli þingmanna
„Það er eins í þingflokki Frjálslynda flokksins eins og í öðrum þingflokkum að það er þingflokkurinn sem skiptir með sér verkum. Miðstjórnin skiptir ekki verkum milli þingmanna í þinginu.“ Þetta segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, um áskorun miðstjórnar flokksins frá því á mánudag, þess efnis að Jón Magnússon verði formaður þingflokksins.
Kristinn H. Gunnarsson gegnir stöðu þingflokksformanns. Á mánudag samþykkti meirihluti miðstjórnar flokksins umrædda áskorun, sem Eiríkur Stefánsson lagði fram. Þar kemur fram að óviðunandi sé að þingmaður FF í Reykjavík skuli ekki hafa verið gerður að formanni þingflokksins eftir síðustu kosningar. Með því hefði verið stuðlað að valddreifingu meðal kjörinna þingmanna flokksins, en frjálslyndir fengu sjö menn kjörna árið 2007.
Spurður um hvort honum finnist samþykkt miðstjórnarinnar vera vantraust á sig, segir Guðjón að það sé ekki miðstjórnarinnar að vera með vantraust. „Formaður flokksins er kosinn á landsþingi,“ bendir hann á. Um tillöguna segist Guðjón hafa verið andsnúinn henni. „Ég var á móti því að þessi tillaga yrði flutt og samþykkt,“ segir hann.
Guðjón Arnar segir að það sé þingflokksins að skipta með sér verkum. Flokkurinn muni gera slíkt við upphaf haustþings. Hann vill ekki svara því hvort til greina komi að skipta um þingflokksformann. „Það er okkar mál í þingflokknum.“
Um störf Kristins H. Gunnarssonar segist Guðjón ekki telja að hann hafi notið sannmælis. Hann hafi að mörgu leyti staðið sig vel sem þingflokksformaður.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. september 2008, Innlent Glymur klukkan Kristni eða Guðjóni?
- Fimmtudagur, 18. september 2008, Innlent Kristinn segir vegið að formanninum
- Mánudagur, 26. maí 2008, Innlent Kemur í bakið á samherjum
- Miðvikudagur, 17. september 2008, Innlent Miðstjórnin vill Jón sem þingflokksformann
- Miðvikudagur, 24. september 2008, Innlent Formaður Frjálslyndra vill leysa deilur
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































