Hægt að fá bætur greiddar erlendis
Atvinnulausir sem hyggjast fara utan í atvinnuleit geta fengið greiddar atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins, EES, hafi þeir verið atvinnulausir í samfellt fjórar vikur fyrir brottför.
Frá því að Ísland gerðist aðili að EES 1994 hefur Vinnumálastofnun gefið út slík vottorð til 1752 einstaklinga, ekki bara til Íslendinga heldur einnig útlendinga sem áunnið hafa sér bætur hér. Til landsins hafa hins vegar komið 654 með slík vottorð á tímabilinu.
„Þetta er hluti af því sem heitir frjálst flæði milli landa og liggur einfaldlega í því að fólk sem er atvinnulaust geti farið til annars lands eftir að það er búið að reyna fyrir sér heima í 4 vikur. Ríkið sem viðkomandi leitar að atvinnu í greiðir bæturnar en rukkar svo heimalandið um þær,“ greinir Jóngeir Hlinason, deildarstjóri hjá Vinnumálastofnun, frá og tekur um leið fram að upphæðin sé sú sem viðkomandi átti rétt á í heimalandinu. „Þetta heitir nefnilega að halda bótum sínum,“ útskýrir hann.
Jóngeir segir að stór hluti Íslendinga sem fari utan í atvinnuleit fari til Norðurlandanna og flestir til Danmerkur. „Langflestir sem koma hingað koma jafnframt frá Danmörku og eru íslenskir námsmenn eða fyrrverandi námsmenn, stærsti hlutinn. Með því að ganga í svokallaðan A-kassa á síðasta námsárinu geta þeir fengið lágmarksbætur að loknu náminu í Danmörku og þetta hafa Íslendingar notfært sér þannig að þeir geta fengið greiddar danskar bætur í allt að 3 mánuði eftir að þeir koma heim.“
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Atvinnulausir eiga ekki rétt á bótum í orlofi
- Föstudagur, 27. mars 2009, Innlent Fastir á Íslandi
- Föstudagur, 16. janúar 2009, Innlent Fleiri halda úr landi
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Útlendingar í atvinnuþrefi
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Innlent Bótaupphæðir: Atvinnuleysið mörgum erfitt
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































