Auknar heimildir Fjármálaeftirlitsins

Fjármálaeftirlitið
Fjármálaeftirlitið mbl.is/Eyþór

Fjármálaeftirlitinu hefur verið veitt meira svigrúm til að grípa til aðgerða ef það álítur fjármálastöðugleika vera ógnað. Það hefur nú auknar heimildir til að banna eða takmarka skortsölu hlutabréfa.

Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að gera breytingar á reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Reglugerðin miðar að því að styrkja heimildir Fjármálaeftirlitsins til að skilgreina ákveðna hegðun andstæða viðurkenndri markaðsframkvæmd með tilliti til fjármálastöðugleika og aðstæðna á markaði.

Segir ráðuneytið, að með þessari heimild sé Fjármálaeftirlitinu veitt meira svigrúm en áður til að grípa til aðgerða  gegn ákveðinni markaðsframkvæmd sem geti talist ógna fjármálastöðugleika eða haft skaðleg áhrif á virkni markaða með hlutabréf.

Með breytingunni er meðal annars ætlunin að styrkja heimildir Fjármálaeftirlitsins til að banna eða setja skorður við skortsölu hlutabréfa ef þær aðstæður koma upp að fjármálastöðugleika eða virkni markaða er ógnað af völdum skortsölu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert