Frekari breytingar hjá RÚV

Samkvæmt heimildum mbl.is eru breytingar í vændum á íþróttadeild RÚV, sem nýverið sameinaðist fréttastofum sjónvarps og útvarps undir merki fréttastofu RÚV. Til stendur að leggja niður starf íþróttastjóra sem Hrafnkell Kristjánsson hefur gegnt.

Íþróttir munu heyra undir Margréti Marteinsdóttur, sem er einn af varafréttastjórum RÚV.

Ekki liggur fyrir hvort einhverjum verði sagt upp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert