Gamli Staðarskálaandinn fylgir
Ekki var annað að sjá en að bæði starfsfólk og viðskiptavinir Staðarskála tækju flutningunum vel. mbl.is
Mikið var að gera í Staðarskála fyrsta daginn í nýja söluskálanum. Iðnaðarmenn voru að vinna við frágang húss og lóðar og gamlir viðskiptavinir litu inn til að sjá hvort gamli Staðarskálaandinn hefði ekki örugglega komið með vestur yfir ána. Starfsfólkið vildi gera sitt til að fólkið upplifði breytinguna þannig.
Nýr vegur um Hrútafjarðarbotn var opnaður fyrr í vikunni og beint í kjölfar þess var nýr Staðarskáli opnaður. Hann kemur í stað skálanna á Stað og Brú, Brúarskáli hefur verið rifinn en Staðarskáli fluttist úr alfaraleið með breytingum á veginum. „Við vonumst til að enn fleiri komi við hjá okkur. Við getum sinnt viðskiptavinunum betur í þessari nýju aðstöðu,“ segir Kristinn Guðmundsson, stöðvarstjóri hjá N1 í Staðarskála.
Framandi réttir með kjötsúpunni
Staðarskáli hefur lengi verið einn af helstu viðkomustöðum ferðafólks á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Þar hefur veitingastaðurinn verið í aðalhlutverki en einnig bensínafgreiðsla og sjoppa. Lögð hefur verið áhersla á íslenskan heimilismat. Kristinn segir að haldið verði í þessa hefð en möguleikarnir sem skapast með stækkun veitingastaðarins verði nýttir , meðal annars til að bjóða upp á nýja og framandi rétti með kjötsúpunni og ástarpungunum sem verið hafa með vinsælustu réttunum í Staðarskála.
„Þetta er erill og mikil vinna. En vinnan er skemmtileg, maður hittir margt fólk og kynnist skemmtilegum persónuleikum,“ segir Kristinn.
Akureyrarrútan kemur við í Staðarskála og margir vöruflutningabílstjórar, auk vegfarenda á eigin bílum. Vörubílstjórarnir sýndu hug sinn til staðarins þegar þeir þeyttu flautur bíla sinna framan við Staðarskála til að kveðja gamla skálann.
Bloggað um fréttina
-
Vilhjálmur Árnason Gamli andinn -
Haraldur Bjarnason Vonandi helst sjarminn -
Sveinn Ingi Lýðsson Er ekki alveg að skilja þetta með sjarmann
Innlent »
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Innlent Búið að loka Brúarskála
- Fimmtudagur, 25. september 2008, Innlent Staðarskáli á nýjum stað
- Miðvikudagur, 20. ágúst 2008, Innlent Brúarskáli í Hrútafirði rifinn
- Fimmtudagur, 19. júní 2008, Innlent Merkingar efnavöru ófullnægjandi
- Sunnudagur, 6. apríl 2008, Innlent „Við erum bara sektaðir“
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































