Áfram verði haldið á sömu braut

Formenn félaga lögreglumanna utan höfuðborgarsvæðisins hafa ályktað um fjarskiptamiðstöðina. stækka

Formenn félaga lögreglumanna utan höfuðborgarsvæðisins hafa ályktað um fjarskiptamiðstöðina. mbl.is/Júlíus

 

Yfirlýsing formanna svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna, staðsettum utan höfuðborgarsvæðisins er svohljóðandi:

„Í kjölfar fjölmiðlaumræðu nú sl. daga þá hafa skapast miklar umræður innan raða lögreglumanna um hvort og þá hvaða verkefni eigi að vera inni á borði embættis ríkislögreglustjóra til  daglegrar stjórnunar. 

Undanfarin ár hefur verið unnið hörðum höndum að því að efla og bæta fjarskiptakerfi lögreglunnar. Síðan TETRA kerfið var innleitt hefur Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra gegnt því hlutverki að vera samhæfingaraðili í aðgerðum lögreglu, tekið á móti símtölum frá Neyðarlínu til úrlausnar fyrir lögreglu sem og þjónustað lögreglumenn um allt land, s.s. við miðlun upplýsinga.

Mörg lögregluembætta landsins hafa í kjölfarið breytt sínum starfsreglum og í auknum mæli séð sér fært um að loka lögreglustöðvum og þar með fjölga útivinnandi lögreglumönnum, ef á þarf að halda.  Aðgengi að þjónustu og upplýsingum er að hafa í gegnum fjarskipti við fjarskiptamiðstöðina í Skógarhlíðinni þar sem starfa menn sem eru sérhæfðir í miðlun upplýsinga úr upplýsingakerfum lögreglu.

Nú vill Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, fá til sín starfsemi Fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra með manni og mús.  Sú uppbygging sem verið hefur í þessum málum er á réttri leið og því væri það mikil afturför að fara í flutning á þessari starfsemi með þeim hætti sem Stefán sér fyrir sér.   Sannarlega getur menn greint á um hvaða starfsemi eigi að vera í umsjá embættis ríkislögreglustjóra en þessi samhæfingarstarfsemi á heima þar, það er ekki spurning.

Sú sýn sem hefur verið kynnt að í kjölfar þess að færa þessa starfsemi yfir til lögreglu höfuðborgarsvæðisins myndi samstarf við Neyðarlínuna verða eflt og starfsmenn hennar settir í þá stöðu að miðla verkefnum til lögreglumanna úti á götunni, það er að sama skapi ekki sú sýn sem við viljum sjá.  Þjónusta fjarskiptamiðstöðvar við lögreglumenn á vettvangi er nauðsynlegur þáttur í starfsemi embætta á landsbyggðinni hvað varðar aðgengi að upplýsingum úr lögreglukerfum sem er lykilþáttur í skilvirkri löggæslu.

Við erum sannfærð um að starfsemi fjarskiptamiðstöðvar sem þjónustar allt landið á heima hjá embætti ríkislögreglustjóra og að þar verði haldið áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið. Að þar starfi fagmenn sem miðla verkefnum og upplýsingum til samstarfsmanna sinna um land allt og samhæfa aðgerðir þegar þess þarf.  Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra, eins og hún er starfrækt í dag, er einn af lykilþáttum í þeirri þróun að efla lögregluna í heild og skapa þannig meira öryggi í samfélaginu.“

Undir yfirlýsinguna skrifa fyrir hönd svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna utan höfuðborgarsvæðisins:

Lögreglufélag Akraness                                    -                              Jónas H. Ottósson

Lögreglufélag Vesturlands                               -                              Guðmundur H. Jónsson

Lögreglufélag Vestfjarða                                 -                              Gylfi Þór Gíslason

Lögreglufélag Norðurlands vestra                  -                              Höskuldur B. Erlingsson

Lögreglufélag Eyjafjarðar                               -                              Hermann Karlsson

Lögreglufélag Þingeyinga                                 -                              Aðalsteinn Júlíusson

Lögreglufélag Austurlands                               -                              Óskar Þór Guðmundsson

Lögreglufélag Suðurlands                                -                              Tinna Jóhönnudóttir

Lögreglufélag Vestmannaeyja                        -                              Tryggvi Kr. Ólafsson

Lögreglufélag Suðurnesja                                -                              Vignir Elísson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
Keramik tekatlar
5 tekatlar til sölu. Seljast allir á 3.000 kr. Upplýsingar í síma 863-7879 eft...
Fjarnámskeið á tilboði, aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
Vw Golf 1.6 Highline 2003
VW Golf árg 2003 ekinn aðeins 112.000 km. búið er að skipta um tímareim. Ver...
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...