Tveim flatskjám, tóbaki og áfengi stolið

Brotist var inn í fimm sumarbústaði í Grímsnesi.
Brotist var inn í fimm sumarbústaði í Grímsnesi. mbl.is/Þorkell

Brotist var inn í fimm sumarbústaði í landi Hallkelshóla í Grímsnesi og stolið ýmsum verðmætum. Meðal annars var stolið tveimur flatskjám, tóbaki og áfengi.

Sumarbústaðaeigandi uppgötvaði innbrot í bústað sinn í gær. Við nánari athugun kom í ljós að brotist hafði verið inn í fimm bústaði. Í einum þeirra fannst kúbein sem talið er að hafi verið notað við innbrotin.

Talið er að innbrotin hafi verið framin frá því um síðustu helgi. Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert